Miðvikudagur 16. maí 2012 16:29

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu

Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnuÍslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu verða haldnir á knattspyrnusvæði Víkings, fimmtudaginn 17. maí kl. 10.00 - 13.00.  Íslandsleikarnir eru haldnir í samvinnu Special Olympics á Íslandi, KSÍ og knattspyrnufélagsins Víkings.   Leikarnir eru í tengslum við Evrópuvika UEFA og Special Olympics en aðildarlönd Special Olympics í Evrópu taka þátt í Evrópuvikunni ár hvert.
 
Special Olympics á Íslandi og Knattspyrnusamband Íslands hafa unnið að undirbúningi verkefnis sem felur í sér æfingar keppni blandaðra liða, fatlaðra og ófatlaðra.    Ísland hefur unnið að verkefninu;  ,,Unified football project" í vetur þar sem markhópur var konur 12 ára og eldri.  Verkefnið er unnið í samstarfi við Knattspyrnufélagið Víking og íþróttafélagið Ösp en unnið verður áfram að útfærslu þess fyrir fleiri markhópa næstu ár.

Til baka