Íþróttafélagið Fjörður er bikarmeistari fatlaðra í sundi fimmta árið í röð en bikarkeppni ÍF í sundi fór fram í Ásvallalaug í dag. Um hörkuspennandi keppni var að ræða og mikil eftirvænting ríkti í Ásvallalaug áður en úrslitin urðu kunn. Þá féllu einnig 14 Íslandsmet á mótinu en bikarkeppni ÍF fer alltaf fram í 25m. laug. Þetta var í fyrsta sinn af fimm sem Fjörður fagnar bikarmeistaratitlinum á heimavelli.