Þriðjudagur 26. júní 2012 09:58

Hulda bætti Íslandsmetið um 4 sentimetra

Hulda Sigurjónsdóttir var rétt í þessu að bæta Íslandsmetið í kúluvarpi á EM í Stadskanaal í flokki F20 kvenna en hún varpaði kúlunni 9,04 metra. Hennar gildandi Íslandsmet var 9,00 metrar en það setti hún fyrr í þessum mánuði á Íslandsmóti ÍF í Laugardal.

Hulda komst ekki í úrslit þrátt fyrir bætinguna á Íslandsmetinu og hafnaði í 10. sæti, rétt á eftir hinni grísku Valasia Krygiovanaki sem varpaði kúlunni 9,22 metra.

Evrópumeistaramótið í Hollandi er fyrsta stórmótið sem Hulda tekur þátt í á vegum IPC og verður fróðlegt að fylgjast með madömmunni úr Mið-Mörk í framhaldinu.

Mynd: Jón Björn/ Hulda Sigurjónsdóttir fagnaði Íslandsmeti í Hollandi.

Til baka