Fimmtudagur 28. júní 2012 14:14

Davíđ nćldi í brons í kúluvarpi - Helgi setti nýtt Íslandsmet í langstökki

Davíđ Jónsson, Ármanni, vann í dag til bronsverđlauna á Evrópumeistaramóti fatlađra í frjálsíţróttum sem fram fer í Stadskanaal í Hollandi. Davíđ opnađi daginn međ nýju Íslandsmeti í fyrsta kasti ţegar hann varpađi kúlunni 11,02 metra. Hans lengst kast í dag sem tryggđi honum bronsverđlaunin var 11,21 metrar. Frábćr byrjun á keppnisferli Davíđs sem í dag keppti á sínu fyrsta Evrópumeistaramóti.

Helgi Sveinsson hafnađi í 4. sćti í stigakeppni F42 og F44 flokkanna er hann stórbćtti Íslandsmetiđ sitt. Eldra metiđ setti Helgi á Íslandsmóti ÍF á Laugardalsvelli fyrr í ţessum mánuđi ţegar hann stökk 5,15 metra en hans lengsta stökk á EM í dag var 5,32 metrar. Stökkiđ dugđi Helga í 4. sćtiđ međ 810 stig.

Ísland hefur nú lokiđ ţátttöku sinni á EM fatlađra í Hollandi og kemur hópurinn heim á föstudagskvöld međ tvenn bronsverđlaun og ein silfurverđlaun í farteskinu.

Mynd/ Jón Björn: Davíđ Jónsson var ađ vonum kampakátur međ bronsverđlaunin sín í kúluvarpi í flokki F42.

Til baka