Mánudagur 2. júlí 2012 15:11

Elín Fanney sigurvegari á minningarmóti Harðar Barðdal

Minningarmót Harðar Barðdal í pútti fór fram í Hraunkoti í Hafnarfirði fyrr í mánuðinum þar sem Hafnfirðingurinn Elín Fanney Ólafsdóttir hafði sigur í flokki fatlaðra. Sigurvegari í flokki ófatlaðra var Oddur Þórðarson. Elín Fanney hlaut einnig hvatningarverðlaun GSFÍ á mótinu.

Mótið tókst mjög vel og sáust mörg glæsileg tilþrif.

Úrslitin vour eftirfarandi.
 
Í flokki fatlaðra
1 sæti   Elín Fanney Ólafsdóttir
2 sæti   Ásmundur Þór Ásmundsson
3 sæti   Kristbergur Jónsson
 
Í flokki ófatlaðra
1 sæti   Oddur Þórðarson
2 sæti   Áki Friðriksson
3 sæti   Sveinbjörn Guðmundsson
 
Einnig voru við sama tækifæri veitt hvatningarverðlaun Golfsamtaka fatlaðra. Verðlaunin eru farandbikar í minningu um Hörð Barðdal sem veittur er fyrir góða ástundun og framfarir á árinu. Að þessu sinni var það Elín Fanney Ólafsdóttir sem tók við bikarnum úr hendi Harðar Þorsteinssonar framkvæmdastjóra GSÍ.

Mynd/ Óli Ragnars: Frá vinstri - Elín Fanney, Hörður Þorsteinsson framkvæmdastjóri GSÍ, Jóhann Hjaltason þjálfari og Ólafur Ragnarsson formaður GSFÍ.

Til baka