Föstudagur 17. ágúst 2012 13:16

Reykjavíkurmaraþonið á morgun


Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2012 fer fram laugardaginn 18.ágúst. Hlaupið verður eins og undanfarin ár haldið á sama degi og Menningarnótt í Reykjavík en í ár er dagurinn einmitt afmælisdagur Reykjavíkur.

Líkt og áður geta þátttakendur hlaupið til góðs og safnað áheitum fyrir góðgerðar og líknarfélög. Þannig velur hlauparinn sér góðgerðarfélag til að safna áheitum fyrir en upplýsingar um þau má finna á vefnumwww.hlaupastyrkur.is

Í ár rétt eins og síðustu ár munu starfsmenn Össurar hlaupa til styrktar ÍF en í fyrra hlupu þeir heila 1200 kílómetra og söfnuðu 600.000 krónum til handa ÍF.

Til baka