Sunnudagur 2. september 2012 17:41

Jón Margeir landađi gullinu og setti heimsmet!

Jón Margeir Sverrisson fór hamförum í sundlauginni í London áđan ţegar hann setti nýtt og glćsilegt heimsmet í 200m skriđsundi í flokki S14, flokki ţroskahamlađra. Jón synti á 1:59,62 mín. en ţrír efstu menn syntu allir undir ríkjandi heimsmeti.

Jón var annar eftir 50 metra á 27,66 sekúndum en var kominn í 1. sćtiđ eftir 100 metra á 57,85 sekúndum. Enn var hann fyrstur eftir 150 metra á 1:28,56 mín og síđasti spretturinn tók hann 31,06 sek. og ţađ dugđi fyrir gullinu og nýju heimsmeti

Jón Margeir er 19 ára gamall og var í kvöld ađ vinna til fyrstu verđlauna Íslands á Ólympíumóti síđan áriđ 2004 ţegar Kristín Rós Hákonardóttir og Jón Oddur Halldórsson fóru mikinn í sundi og frjálsum. Ţá er ánćgjulegt ađ greina frá ţví ađ heimsmetiđ hans er einnig Ólympíumótsmet og mun ţađ standa nćstu fjögur árin eđa ţangađ til í Rió 2016!

Sund Jóns Margeirs í heild sinni
Jón Margeir tekur á móti gullinu
Fyrsta viđtaliđ viđ Jón eftir sigursundiđ

Mynd/
Jón Margeir bendir áhorfendum á hvađan hann kemur međ ţví ađ veifa sundhettunni sinni. 


Til baka