Föstudagur 7. september 2012 07:13

Síđasti keppnisdagurinn runninn upp

Í dag er síđasti keppnisdagurinn á Ólympíumóti fatlađra hjá íslenska hópnum en ađ ţessu sinni er ţađ frjálsíţróttamađurinn Helgi Sveinsson sem á sviđiđ. Helgi hefur daginn í 100m hlaupi í flokki T42 og skömmu eftir hlaupiđ tekur viđ keppni í spjótkasti í flokki F42. Helgi tók silfurverđlaun á EM fyrr í sumar í spjótkasti eftir harđa keppni viđ Norđmanninn Runar Steinstad.

Fyrst í dag eru ţađ 100 metrarnir og hefst keppnin kl. 09:15 ađ íslenskum tíma ţar sem Helgi verđur í öđrum undanriđli á braut sex.

Ađ loknum 100m hlaupinu keppir Helgi í spjótkasti og hefst sú keppni kl. 10:33 ţar sem Helgi er ellefti í kaströđinni af jafnmörgum keppendum. Af ellefu keppendum í spjótinu er helgi međ fimmta besta árangurinn en ţađ er Íslandsmetiđ hans 46,52 metrar.

Mynd/ Helgi á risaskjánum á Ólympíumótsleikvanginum. Hann keppir í 100m hlaupi og spjótkasti í dag í flokki 42.

Til baka