Miðvikudagur 10. október 2012 14:58

Nú renna öll vötn til Ísafjarðar: Íslandsmótið í boccia sett á morgun

Á morgun, 11. október, verður Íslandsmótið í einstaklingskeppni í boccia sett á Ísafirði en keppni stendur yfir dagana 12. og 13. október. Rúmlega 200 keppendur frá 14 aðildarfélögum Íþróttasambands fatlaðara munu taka þátt í mótinu og setja svip sinn á Ísafjarðarbæ um komandi helgi.
 
Venju samkvæmt ríkir mikil eftirvænting fyrir lokahófinu sem fram fer á laugardagskvöld í íþróttahúsi Bolungarvíkur. Hleypt verður inn frá kl. 18:30 og hefst kvöldverður kl. 19:00. Veislustjóri er Guðmundur Kristjánsson, betur þekktur sem Mugipapa. Dansleikurinn hefst kl. 21:00 og stendur til miðnættis en það er Bolvíkingurinn Benni Sig. ásamt hljómsveit sem mun halda uppi fjörinu.
 
Jafnan er mikil og góð keppni á Íslandsmótum ÍF í boccia og búist er við að svo verði áfram á Ísafirði þessa helgina og allir hvattir til þess að líta við í íþróttahúsinu á Ísafirði.
 
Nánari upplýsingar um mótið veita mótshaldarar á Ísafirði.
Arnþór:897-7370
Harpa:863-1618

Til baka