Þriðjudagur 16. október 2012 14:05

Bingó til styrktar fullrúum Íslands á Vetrarleikum SO

Vetrarleikar Special Olympics fara fram í Suður-Kóreu í janúar á næsta ári. Af því tilefni er blásið til sannkallaðrar Bingó-veislu sem fram fer í Hólabrekkuskóla í Breiðholti þann 20. október næstkomandi. Bingóið hefst kl. 14:00 og eru allir að sjálfsögðu velkomnir.

Vinningarnir eru ekki af verri endanum, flugmiðar til Evrópu, reiðtúrar og ævintýraferðir, gjafakörfur og allskyns dekur svo eitthvað sé nefnt og það fyrir litlar 1000 krónur á hvert bingóspjald.

Fulltrúar Íslands á vetrarleikunum verða þeu Katrín G. Tryggvadóttir, Júlíus Pálsson og Þórdís Erlingsdóttir.

Fjölmennum í Bingó til styrktar góðu verkefni!

Til baka