Ţriđjudagur 15. janúar 2013 14:04

Ef ég hef trú á ţví ţá get ég ţađ

Í kvöld kl. 20:00 mun RÚV sýna heimildarmynd eftir Kolbein Tuma Dađason sem heitir ,,Ef ég hef trú á ţví ţá get ég ţađ." Í myndinni er fylgst međ sundkappanum Jóni Margeiri Sverrissyni í ađdraganda Ólympíumótsins í London síđastliđiđ sumar. Á mótinu vann Jón eins og kunnugt er til gullverđlauna og setti einnig heims- og Ólympíumet.

Myndin er lokaverkefni Kolbeins Tuma í meistaranámi í blađa- og fréttamennsku viđ Háskóla Íslands. Tökur hófust í maí 2012 eđa rúmum ţremur mánuđum áđur en Jón Margeir nćldi í gulliđ eftirminnilega. Jón Margeir ćtlar sér ađ keppa bćđi á Ólympíuleikunum og Ólympíumóti fatlađra í Ríó áriđ 2016. Hann stefnir á ţátttöku í 1500 metra skriđsundi en titill myndarinnar er vísun í svar hans hvort hann eigi möguleika á ţví.

„Mađur fćr eđlilega minnimáttarkennd viđ ađ fylgjast náiđ međ jafnflottum íţróttamanni og Jóni Margeiri. Auk ţess ađ vera frábćr sundmađur er hann ótrúlega lúnkinn í fótbolta og ofurhugi ţegar kemur ađ hjólreiđum," segir Kolbeinn Tumi.
„Ég hef horft á úrslitasundiđ í London svo oft ađ ég kann lýsingu Adolfs Inga utan ađ. Ég fć samt alltaf gćsahúđ og kökk í hálsinn ţegar okkar mađur kemur í mark," segir Kolbeinn Tumi.

Ţar sem myndin er lokaverkefni Kolbeins Tuma ţá vatt hann sér sjálfur í hin ýmsu gervi ef svo má ađ orđi komast. Kolbeinn Tumi var bćđi tökumađur, klippari og handritshöfundur og hvetur ÍF sem flesta til ađ stilla á RÚV kl. 20:00 í kvöld.

Mynd/ Eva Björk: Jón Margeir međ Ólympíumótsgulliđ viđ mótttökuathöfn sem fram fór í Laugardal síđastliđinn september.

Til baka