Föstudagur 18. janúar 2013 16:06

Þátttaka Íslands í alþjóðavetrarleikum Special Olympics í Suður Kóreu

Dagana 29. janúar til 5. febrúar 2013 fara fram í S Kóreu alþjóðavetrarleikar Special Olympics. Íþróttasamband fatlaðra sendir þrjá keppendur á leikana. Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Þórdís Erlingsdóttir og Júlíus Pálsson, frá skautadeild Aspar munu taka þátt í listhlaupi á skautum. Þau keppa í einstaklingsgreinum auk þess sem Ísland tekur þátt í parakeppni í fyrsta skipti.

2.300 keppendur frá 120 löndum taka þátt í 7 íþróttagreinum, alpagreinum, norrænum greinum, skautahlaupi, listhlaupi á skautum, snjóbrettakeppni, snjóþrúgugöngu, og hokký.

Íslenski hópurinn býr í Seoul fyrstu dagana og tekur þátt í vinabæjardagskrá  26. – 29. janúar en markmið er að þátttökuþjóðir kynnist menningu og siðum þjóða sem standa að leikunum hverju sinni. 
 
Tveir íslenskir skólar taka þátt í skólaverkefni Special Olympics School Enrichment sem sett var upp í tengslum við leikana en það eru Hólabrekkuskóli og Fjölbrautarskólinn í Garðabæ.

Á leikum Special Olympics keppa  einstaklingar með þroskahömlun, jafnt byrjendur sem lengra komnir. Umgjörð alþjóðaleikanna  er glæsileg og líkist umgjörð  ólympíumóta fatlaðra en keppnisformið er  gjörólíkt. Úrslitariðlar byggja á keppni jafningja, engin lágmörk þarf á leikana, allir fá verðlaunapening eða verðlaunaborða og því hafa margir upplifað sig sem sigurvegara í fyrsta skipti á ævinni á leikum Special Olympics samtakanna.
 
Íþróttasamband fatlaðra hefur verið umsjónaraðili starfsemi Special Olympics á Íslandi frá árinu 1989. Kennedy fjölskyldan stofnaði Special Olympics International (SOI) árið 1968, Eunice Kennedy Shriver var forsvarsmaður SOI í tugi ára en nú er sonur hennar  Timothy Kennedy Shriver í forystuhlutverkinu.  Alþjóðaleikar eru haldnir fjórða hvert ár og voru frá upphafi haldnir í Bandaríkjunum, jafnt sumar sem vetrarleikar.  Það var fyrst árið  2003 sem leikarnir fóru fram utan USA, þá í Dublin í Írlandi,  árið 2007 í Shanghai í Kína og 2011 í Aþenu í Grikklandi.   Vetrarleikar fóru í fyrsta skipti fram utan USA árið 2005, þá í Japan.  Næstu alþjóðasumarleikar  Special Olympics verða  Los Angeles  2015.

Nánari upplýsingar á skrifstofu ÍF - if@isisport.is / 514 4080


Til baka