Þriðjudagur 12. febrúar 2013 09:49

Fyrirlestur í Reykjavík - Útivist fatlaðs fólks, endalausir möguleikar

Mánudagur 18. febrúar 2013 kl 17:00 - 19:00 í Hátúni 12 105 Reykjavík  V- inngangur

Fatlað fólk getur stundað útivist eins og hver annar. Stundum þarf aðlagaðan búnað til að fólki sé þetta kleift en með rétta búnaðnum kemst hreyfihamlað fólk, blindir og fólk með aðrar fatlanir á skíði, í klettaklifur, í kajakróður eða annað sem því langar til. Beth Fox, framkvæmdastjóri National Sports Center for the Disabled (NSCD), hefur verið með fötluðu fólki í útivist í yfir 25 ár og ætlar að miðla af reynslu sinni og kynna útivistarmöguleika fatlaðs fólks.
Fyrirlesturinn er haldinn í Rauða salnum, Hátúni 12 (Vestur inngangur), 105 Reykjavík. Frítt er á fyrirlesturinn og er hann öllum opinn sem áhuga hafa.
Nánari upplysingar má fá hjá Guðnýju Bachmann á Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar í síma 5 500 118, gundy@sjalfsbjorg.is
 

Til baka