Mánudagur 15. apríl 2013 11:31

Lokahófið í Gullhömrum - húsið verður opnað kl. 18:00

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra fer fram um næstu helgi í Reykjavík. Venju samkvæmt er veglegt lokahóf á sunnudagskvöldinu. Lokahófið fer fram í Gullhömrum en matseðillinn er veglegur og eins og áður hefur komið fram eru það Ingvar Valgeirs og Bjarni töframaður sem stýra munu veislunni. Þeir bregða sér svo í hljómsveitargallann síðar um kvöldið og: ,,halda uppi fjörinu með hressleikatríóinu Swiss sem mun leika létt og skemmtileg lög af annarra manna hljómplötum á meðan birgðir endast," sagði Ingvar Valgeirsson annar veislustjóra kvöldsins.

Húsið verður opnað kl. 18:00 og mun borðhald hefjast kl. 19:00.

Matseðill:

Rjómalöguð villisveppasúpa með nýbökuðu brauði
Lambahryggvöðvi með kartöfluköku, steiktum skógarsveppum og lambasoðsósu
Volg súkkulaðikaka með hindberjasósu og vanilluís

Verð á lokahófið er kr. 5900,- per miða en þá verður hægt að nálgast í Laugardalshöll laugardaginn 20. apríl á milli kl. 14 og 16 við veitingasöluna. Margrét Kristjánsdóttir stjórnarmaður hjá ÍF mun sjá um afhendingu miðanna, síminn hjá Margréti er 862 1268. Þau félög/einstaklingar sem ekki hafa gengið frá miðapöntun á lokahófið nú þegar eru beðin um að gera það eigi síðar en í dag, að öðrum kosti verður ekki hægt að tryggja að viðkomandi fái aðgang að hófinu.

Allar frekari upplýsingar um Íslandsmótið má nálgast á if@isisport.is eða í síma 514 4080.

Til baka