Þriðjudagur 7. maí 2013 09:57

Vorboðinn ljúfi: Heklumenn í heimsókn


Með hækkandi sól er jafnan von á góðum gestum í Laugardalinn en ár hvert fær Íþróttasamband fatlaðra góða menn í visitasíu á skrifstofurnar. Vorboðinn ljúfi hjá Íþróttasambandi fatlaðra kemur í formi Kiwanismanna í Kiwanisklúbbi Heklu.

Hópurinn heimsótti ÍF á dögunum þar sem Birgir Benediktsson forseti Kiwanisklúbbsins afhenti Sveini Áka Lúðvíkssyni formanni ÍF fjárstyrk til handa sambandinu.

Íþróttasamband fatlaðra vill koma á framfæri innilegu þakklæti til handa Heklumönnum!

Mynd/ Frá heimsókn Heklu á skrifstofur ÍF í Laugardal.

Til baka