Miðvikudagur 5. júní 2013 11:52

Fararstjóranámskeið 10. júní

Vegna mikillar aðsóknar á fararstjórnarnámskeið ÍSÍ þann 3. júní síðastliðinn verður boðið upp á annað námskeið þann 10. júní næstkomandi. Námskeiðið mun fara fram í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal og hefst kl. 19:00 til kl. 21:30.

Gústaf Adolf Hjaltason mun sjá um fræðsluna og veitir hann ýmsar gagnlegar upplýsingar til handa þeim fjölmörgu foreldrum og sjálfboðaliðum sem taka að sér fararstjórn innan íþróttahreyfingarinnar. Námskeiðið verður þátttakendum að kostnaðarlausu og fer skráning fram á skraning@isi.is

Mynd/ Gústaf Adolf

Fylgstu með ÍF á Facebook

Til baka