Fimmtudagur 13. júní 2013 15:24

Fimm íslenskir sundmenn keppa á HM í Kanada


Heimsmeistaramót fatlađra í sundi fer fram í Montreal í Kanada dagana 12.-18. ágúst nćstkomandi og mun Ísland eiga fimm fulltrúa á mótinu. Međ í för verđa Ólympíumótsfararnir 2012, ţau Jón Margeir Sverrisson gullverđlaunahafi og Ólympíumótsmethafi í 200m skriđsundi í flokki S14 og Kolbrún Alda Stefánsdóttir.

Einnig munu Aníta Ósk Hrafnsdóttir, Thelma Björg Björnsdóttir og Hjörtur Már Ingvarsson taka ţátt í heimsmeistaramótinu.

Íslenski hópurinn - félag - fötlunarflokkur
Jón Margeir Sverrisson - Fjölnir - S14
Kolbrún Alda Stefánsdóttir - SH/Fjörđur - S14
Aníta Ósk Hrafnsdóttir - Breiđablik/Fjörđur - S14
Thelma Björg Björnsdóttir - ÍFR - S6
Hjörtur Már Ingvarsson - Fjörđur - S5

Íslenski hópurinn mun halda utan til Kanada fimmtudaginn 8. ágúst og er vćntanlegur aftur til Íslands ađ móti loknu ţann 19. ágúst. Landsliđsţjálfari í ferđinni er Kristín Guđmundsdóttir.

Mótiđ er stćrsta sundmótiđ í röđum fatlađra síđan keppendur komu saman í London 2012 en gert er ráđ fyrir ţví ađ um 650 sundmenn frá um 60 ţjóđlöndum taki ţátt í mótinu.

Til baka