Föstudagur 21. júní 2013 09:30

Beth Fox fékk Cobb Partnership verðlaunin


Beth Fox sem kennt hefur á námskeiðum fyrir fatlaða í Hlíðarfjalli undanfarin ár fékk á dögunum Cobb Partnership verðlaunin sem Fullbright stofnunin í Bandaríkjunum veitir. Viðurkenningin er veitt á Íslandi u.þ.b. annað hvert ár á vegum Fullbright stofnunarinnar en til verðlaunanna var stofnað árið 1991 af þáverandi sendiherrahjónum á Íslandi, Charles E. Cobb Jr. og Sue Cobb. Verðlaunin eru veitt þeim Bandaríkjamanni sem hefur unnið farsællega að samskiptum Íslands og Bandaríkjanna og styrkt tengslin milli landanna tveggja, hvort heldur er á sviði menningar, mennta eða atvinnulífs. 

Beth Fox hefur kennt fötluðu fólki á skíði í 25 ár jafnframt því að vera framkvæmdastjóri National Sports Center for Disabled (NSCD) sem sérhæfir sig í útivist fatlaðs fólks. Hún kom fyrst hingað til lands árið 2006 til að leiðbeina bæði fötluðum og leiðbeinendum fatlaðs fólks í skíðaíþróttinni og hefur síðan komið á hverju ári. Þetta verkefni hefur verið í samstarfi Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands, Íþróttasambands fatlaðra, Hlíðarfjalls og  NSCD, Winter Park Colorado í Bandaríkjunum. Beth hefur bæði kennt í Hlíðarfjalli og haldið fyrirlestra hér á landi. Beth hefur einnig haft milligöngu um að íslenskir leiðbeinendur og iðkendur hafa getað farið til Winter Park og æft og kynnt sér nánar útivist fatlaðra.

Samstarfið við Beth Fox hefur skilað mikilli framþróun hvað varðar skíðaiðkun fatlaðra á Íslandi, verið mikilsverður þáttur í endurhæfingu og auknum lífsgæðum fólks með fötlun. Því er Beth Fox vel að þessari viðurkenningu komin.

Nánar er rætt við Beth í næsta tölublaði Hvata sem áætlað er að komi út í næstu eða þarnæstu viku.

Mynd frá vinstri: Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF, Beth Fox og Charles E. Cobb Jr. fyrrum sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.

Til baka