Miðvikudagur 7. ágúst 2013 14:02

Reykjavíkurborg heiðraði Helga


Í gær hélt Reykjavíkurborg hóf til heiðurs Helga Sveinssyni heimsmeistara í spjótkasti aflimaðra (F42) en hófið fór fram í Höfða í blíðskapaviðri. Jón Gnarr borgarstjóri óskaði Helga til hamingju með árangurinn og færði honum forláta blómvönd fyrir vikið.

Freyr Ólafsson formaður frjálsíþróttadeildar Ármanns tók einnig til orða og kvaðst stoltur af sínum manni en Helgi er félagsbundinn ármenningur.

Stöð 2 leit einnig við og ræddi við Helga (hefst á 1.30 mín).

Til baka