Miðvikudagur 11. september 2013 10:49

Starfsmenn Össurar hlupu 770km til styrktar ÍF


Starfsmenn Össurar hlupu 770 kílómetra til styrktar Íþróttasambandi fatlaðra í Reykjavíkurmaraþoninu þetta árið. Alls söfnuðust því 385.000 kr. til handa ÍF en Össur er einn helsti styrkar- og samstarfsaðili sambandsins.

Íþróttasamband fatlaðra vill koma á framfæri innilegu þakklæti til Össurar og starfsmanna fyrirtækisins fyrir þetta veglega framtak.

Myndir/ Starfsmenn Össurar létu ekki smá súld í Reykjavíkurmaraþoninu á sig fá heldur kláruðu saman alls 770 kílómetra!


Til baka