Samþykkt með áorðnum breytingum á Sambandsþingi ÍF 11.11.2000
Fylgiskjal 7.0

REGLUGERÐ FYRIR SPECIAL OLYMPICS NEFND ÍF

1.0. Innan ÍF skal starfa Special Olympics nefnd (skammstafað S.O.)
skipuð þremur til fimm mönnum.
Formaður ÍF skal vera formaður S.O. nefndar ÍF.
Staðgengill formanns ÍF er varaformaður ÍF.

2.0 Verkefni nefndarinnar skulu vera eftirfarandi:

2.1 S.O. nefnd ÍF skal hafa til umfjöllunar helstu verkefni á vegum S.O.
erlendis og vera umsagnaraðili um val þátttakenda og fararstjóra á mót
SOI og SOE. Endanlegt val skal vera í höndum stjórnar ÍF.

2.2 S.O. nefnd ÍF skal skipuleggja Íslandsleika S.O. sem halda skal annað hvert
ár. Aðildarfélög ÍF geta verið framkvæmdaaðilar þessarra leika í samráði
við S.O. nefnd ÍF.

2.3 S.O. nefnd ÍF skal leitast við að kynna og útbreiða hugmyndafræði SOI
og hafa yfirumsjón með því starfi sem varðar S.O. erlendis sem innanlands.

2.4 Stjórn ÍF styrkir S.O. nefnd ÍF fjárhagslega og hefur yfirumsjón með allri
fjáröflun eins og gildir um annað starf á vegum ÍF.