Reglugerð um skiptingu lottótekna

Gildir frá 25. apríl 2015

Skipting þeirra Lottótekna sem Íþróttasambandi fatlaðra er úthlutað frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands skal fara fram samkvæmt  reglugerð þessari.

50% renna til fræðslu- og útbreiðslumála ÍF

50% hlutur renna til aðildarfélaga ÍF samkvæmt svohlóðandi skiptingu:

  • 2/5 verður skipt jafnt meðal allra félaga.
  • 2/5 verður skipt meðal þeirra félaga sem sinna barna og unglingastarfi og eru upplýsingar úr Felix til staðfestingar á því starfi.
  • 1/5 verður notaður til að styrkja aðildarfélög sem eiga í fjárhagsvanda (t.d. styðja við þátttöku í þingi ÍF). Stjórn ÍF hefur það hlutverk að úthluta úr sjóð samkvæmt reglum sem stjórn ÍF setur.

Aðildarfélögum ÍF, sem sækja um styrk úr þessum hluta lottótekna, ber að sýna fram á fjárhagsvanda sinn. Senda þarf inn upplýsingar um fjárhagsstöðu viðkomandi félags til stjórnar ÍF og framkvæmdastjóra fjármálasviðs í hennar umboði. Í því fellst að senda nýjustu upplýsingar um stöðu félags og samþykkta reikninga félagsins. Með þessari styrkveitingu er stutt við þátttöku  aðildarfélaganna í Sambandþingi ÍF.

Við alla úthlutun er stuðst við upplýsingar úr Felix og einungis er heimilt að greiða til félaga sem eru í góðri stöðu og hafa skilað starfsskýrslum.

Fjármunir sem mögulega verða afgangsfjármunir, ef einhverjir eru, þess 1/5 hluta sem nota skal til styktar aðildarfélögum í fjárhagsvandaverða verða að renna í Verkefnasjóð ÍF að afloknu þingi hverju sinni.