Special Olympics Iceland

Upplýsingar um Special Olympics samtökin

www.specialolympics.org SOI

Heimasíða Íslandsbanka

Heimasíða Samherja

Styrktaraðilar
Special Olympics á Íslandi

Special Olympics samtökin voru stofnuð af Kennedy fjölskyldunni í Bandaríkjunum árið 1968. Markmið þeirra er að bjóða upp á íþróttatilboð fyrir þroskaheft fólk og aðra þá sem eiga við námserfiðleika að stríða.

Íþróttasamband Fatlaðra gerðist aðili að Special Olympics samtökunum árið 1989 og hefur síðan þá verið umsjónaraðili samtakanna á Íslandi. Samskipti Íslands og alþjóðasamtakanna byggja á kerfisbundnum ákvæðum um skil á árskýrslum og upplýsingum um ýmsa þætti starfsins á hverju ári. Starfsemi Special Olympics er rekin af sjálfstæðum samtökum í flestum löndum og í raun er gert skilyrði um slíkt. Ísland sótti um undanþágu til að geta samræmt starfsemina íþróttastarfi fatlaðra á Ísland og það var samþykkt af SOI.
Íþróttakeppni á mótum Special Olympics er gjörólík öðrum íþróttamótum og ákveðin regla gildir um val einstaklinga í úrslitakeppni. Mjög strangar reglur gilda varðandi skráningarform keppenda og senda þarf mjög ítarlega upplýsingar um hvern keppenda til mótshaldara erlendis, hverju sinni.

Ákveðið jafnræði verður að ríkja og ef árangur í úrslitakeppni er óeðlilega góður miðað við undankeppni getur keppandi átt von á að missa verðlaun sín. Prósenturegla gildir um þann mun sem má vera á frammistöðu í undankeppni og úrslitakeppni. Raðað er í riðla eftir frammistöðu í undankeppni, þeir bestu eru í fyrsta riðli, næst bestu í næsta riðli og svo koll af kolli þannig að mikilvægt er að allir geri sitt besta í undankeppninni.  Þannig er öllum gert kleift að eiga möguleika á verðlaunasæti.

Special Olympics samtökin hafa hlotið leyfi IOC til að nota Olympic í nafn samtakanna en IPC þarf að skilgreina ólympíumót fatlaðra með orðinu Paralympic. Afreksfólk úr röðum fatlaðra tekur þátt í ólympíumóti fatlaðra en keppnisform á Special Olympics leikum byggir á þátttöku allra getuhópa. Mörgum þykir því sem leyfi IOC ætti fremur að hafa verið gefið IPC en SOI.
Hjá SOI þarf að uppfylla ströng skilyrði um umgjörð og skipulag móta hvort sem um er að ræða alþjóðamót, smáþjóðaleika eða landsmót. Fáni leikanna er borinn inn af keppendum, lesinn er eiður SOI og eldur er kveiktur eins og á ólympíumótum. Allt skipulag þarf að taka mið af reglum SOI og gildir það bæði innan vallar sem utan. Verðlaunaafhending þarf að vera mjög formleg og tónlist er leikin við hverja afhendingu. Hér er um að ræða spennandi vettvang fyrir alla áhugasama íþróttaiðkendur í röðum fólks með þroskahömlun eða sérþarfir. Fjölmennasti hópurinn eru almennir iðkendur og hér hafa skapast tækifæri fyrir þennan hóp til að upplifa glæsilega íþróttaviðburði á vegum Special Olympics International og Special Olympics í Evrópu.
Árið 2000 voru þátttakendur innan Special Olympics International um ein milljón en sett var á fót markvisst átak í þeim tilgangi að fjölda iðkendum hratt um allan heim.  Árið 2016 eru iðkendur orðnir um  5  milljónir. Áhersla hefur verið lögð á að ná til fátækari landa og að skapa börnum þar tækifæri til íþróttaiðkunar.

Ekki bara íþróttasamtök

Ísland hefur þurft að sinna fjölmörgum verkefnum vegna aðildar að samtökunum, öðrum en þátttöku í íþróttaviðburðum, s.s. samvinnu vegna heildarskráninga á þátttakendum í aðildarlöndunum, samvinnuverkefni á sviði skólamála og samvinnuverkefni um heilsufar og aðstæður daglegs lífs.  Auk þessa eru sífellt að koma upp ný verkefni og Ísland hóf nýlega þátttöku í tveimur alþjóðaverkefnum LETR og YAP.  LETR er samstarfsverkefni Special Olympics samtakanna og lögreglunnar og Ísland hóf þátttöku árið 2013. YAP er verkefni sem miðar að því að efla hreyfifærni barna með sérþarfir en verkefnið hófst á Íslandi 2015.

Evrópudeild Special Olympics

Í Brussel og Írlandi eru skrifstofur sem sjá  um verkefni Special Olympics í Evrópu og starfsfólk þar er tengiliður alþjóðasamtakanna við Evrópulönd. Áhrif Evrópu á uppbyggingu alþjóðasamtakanna hafa verið töluverð og lýðræði hefur aukist, sérstaklega á síðustu arum varðandi ákvarðanatöku og verkefnaval.

Fjórir Evópufulltrúar eru starfandi og er fulltrúi Vestur Evrópu, Marian Murphy, Írlandi. Netfang hennar erwesteuro@indigo.ie  Marian á m.a. að vera ráðgjafi Íslands í málefnum Special Olympics.

Sérstakt Evrópuráð, EELC ( European Leadershiop Council) er starfandi innan alþjóðasamtakanna, en hlutverk fulltrúa þess er m.a. að sinna ákveðnum málum sem upp koma innan Evrópu, auk þess sem hver fulltrúi hefur umsjón með ákveðnum löndum innan samtakanna. Ísland átti fulltrúa í Evrópuráðinu árin 2001 – 2008 en hlutverk hans var m.a. að vera tengiliður SOI og SOE við starfsemi Special Olympics á Norðurlöndunum.  Norræn nefnd Special Olympics hefur verið starfandi í nokkur ár og fulltrúi Íslands hefur gegnt formennsku þar frá upphafi.
Framkvæmdastjórar Special Olympics, í hverju landi þurfa að sinna ákveðnum samstarfsverkefnum Evrópu, s.s. sækja Evrópuráðstefnu sem haldin er annað hvert ár, en þar er einnig venja að íþróttastjórar eða fulltrúar stjórna Special Olympics, taki þátt í dagskrá.

Íþróttagreinastjórar í hverri grein eru tengiliðir við stjórn Special Olympics á íslandi og veita faglega ráðgjöf

Stjórn Special Olympics á Íslandi tekur fyrir málefni Special Olympics og kynnir þau stjórn ÍF

Skipulag starfsins á Íslandi hefur verið í sama formi frá upphafi, tengt starfi Íþróttasambands fatlaðra en ákveðin verkaskipting er á skrifstofu IF.   Á öðrum Norðurlöndum hefur starf Special Olympics átt erfitt uppdráttar, verið tímabundið hluti af starfi íþróttasambanda og tímabundið sjálfstæð eining en síðustu ár hefur formið þróast í þá átt að flest Norðurlönd hafa nú Special Olympics, tengt öðru íþróttastarfi fatlaðra.