Fréttatilkynning - Global Games eða Heimsleikar þroskaheftra |
Global Games eða Heimsleikar
þroskaheftra eru haldnir í Tékklandi dagana 5. – 14. júlí 2009.
Íþróttasamband fatlaðra sendir tvo keppendur á leikanna en þeir eru sundmennirnir Jón Margeir Sverrisson íþróttafélaginu Ösp og Ragnar Ingi Magnússon, íþróttafélaginu Firði, Hafnarfirði. Þjálfarar og fararstjórar eru Ingi Þór Einarsson og Ingigerður Stefánsdóttir auk þess sem Þórður Árni Hjaltested, gjaldkeri ÍF og varaformaður INAS-Fid Evrópu verður viðstaddur leikanna. Það verður spennandi að fylgjast með þessum ungu og efnilegu sundmönnum í keppni við þá bestu í heiminum en Ísland hefur í gegnum tíðina átt á að skipa sundmönnum í fremstu röð. 1.460 þátttakendur frá 40 löndum mæta á leikana sem eru stærstu leikar
þroskaheftra og hugsaðir sem eins lags Ólympíumót þessa fötlunarflokks þar sem
þroskaheftir íþróttamenn hafa ekki tekið þátt í Ólympíumótum fatlaðra síðan í
Sydney árið 2000. Þetta er í annað skipti sem slíkir leikar eru haldnir en
árið 2004 fóru þeir fram í Svíþjóð. Þroskaheftir keppendur hafa verið
útilokaðir frá þátttöku í mótum IPC ( alþjóðaíþróttahreyfingar fatlaðra) frá
árinu 2000. Þessi ákvörðun kom í kjölfar þess að upp komst að liðsmaður í
körfuboltaliði Spánverja á Ólympíumótinu í Sydney var ófatlaður. Maðurinn
sem var blaðamaður hafði náð að villa á sér heimildir og í kjölfar þessa hófst
vinna við endurskoðun flokkunarkerfis sem erfitt hefur reynst að finna lausn
á. Ísland hefur verið eitt af þeim löndum sem hvað harðast hefur barist
fyrir því að málið verði endurskoðað og þroskaheftir verða í fyrsta skipti frá
árinu 2000 þátttakendur á móti á vegum IPC en það er Evrópumót í sundi sem fram
fer á Íslandi í október 2009. Ísland neitaði að halda þetta mót nema
þroskaheftir yrðu með og vonast er til þess að lausn finnist sem gerir þeim
kleift að taka þátt í ólympíumóti fatlaðra 2012 í London. |