Á skíðum þrátt fyrir mænuskaða

Vetraríþróttanámskeið fyrir fatlaða hafa verið haldin í Híðarfjalli í samstarfi Íþróttasambands Fatlaðra og Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands frá árinu 2000.  Samstarf hófst árið 2000 við Challenge Aspen í Colorado og árið 2006 við NSCD, Winter Park, Colorado. Leiðbeinendur hafa komið til Íslands og Íslendingar hafa notið leiðsagnar og ráðgjafar í Colorado.   ÍF hefur notið mikilvægrar aðstoðar starfsfsfólks á Grensásdeild við að hvetja fólk til að kynna sér möguleika á útivistartilboðum fatlaðra. Arna Sigríður Albertsdóttir og Kristín Sigurðardóttir  sem höfðu verið í endurhæfingu á Grensásdeild mættu á námskeið ÍF og VMÍ í febrúar 2009 þar sem leiðbeinandi var m.a. Beth Fox frá Winter Park.  Þær sýndu strax mikinn áhuga á að læra að nota sleðana og eru nú staddar á námskeiði í Winter Park.  Þær eru  með bloggsíðu www.kristinogarna.bloggar.is  

Myndir frá námskeiði ÍF, VMÍ og Winter Park í  Hlíðarfjalli í febrúar 2009 eru á www.123.is/if

Eftirfarandi frétt um ferð Örnu Sigríðar og Kristínar til Bandaríkjanna er á mbl.is

Tvær 19 ára gamlar stúlkur, sem eru báðar bundnar við hjólastól eftir alvarleg slys, eru nú staddar í Bandaríkjunum þar sem þær æfa skíði. Stúlkurnar, sem kynntust í endurhæfingu  á Grensásdeildinni, hafa stofnað bloggsíðu þar sem þær fjalla um skíðaævintýri sín í Colorado.

Stúlkurnar, sem heita Kristín Sigurðardóttir og Arna Sigríður Albertsdóttir, eru báðar fæddar árið 1990. Eftir að hafa kynnst á Grensás fóru þær saman á skíðanámskeið á Akureyri í fyrra, en þar var fólk frá Bandaríkjunum og Austurríki að kenna fólki á svokölluð einskíði. Það eru skíði fyrir einstaklinga sem geta ekki staðið á tveimur skíðum.
Kristín og Arna fengu áhuga á íþróttinni og fór til Bandaríkjanna 30. nóvember sl. á annað námskeið á skíðasvæðinu Winter Park í Denver.

Arna, sem æfði skíði á yngri árum, slasaðist alvarlega í æfingarferð í Noregi í desember 2006. Hún hlaut mænuskaða og getur ekki hreyft neitt og er tilfinningalaus fyrir neðan brjóst.

,,Með að skíða aftur vil ég reyna að finna mér íþrótt sem ég get stundað og njóta útiverunnar og fá vonandi smá frelsis tilfinningu,'' skrifa Arna á bloggsíðuna.

Kristín lenti í alvarlegu bílslysi í september í fyrra. Hún hlaut mænuskaða og lamaðist fyrir neðan mitti. Hún er hins vegar með mátt í hnjám og framanverðum lærum.

,,Með því að stunda skíði gefst mér tækifæri á að vera úti í náttúrunni þar sem að það er ekki oft tækifæri til þess á veturna og gefur manni frelsi og tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt með vinum,“ skrifar Kristín.