Sparkvallaverkefni ÍF og KSÍ á
Akureyri
Síðastliðinn sunnudag var haldin sparkvallaæfing fyrir fatlaða á
sparkvellinum við Brekkuskóla. Góðir gestir mættu á æfinguna, miðluðu af
reynslu sinni og urðu vitni af flottum fótboltatöktum. Jónas L.
Sigursteinsson stjórnaði æfingunni en gestkvæmt var á sparkvellinum.
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari karla, var einn þeirra er kom á æfinguna
ásamt Kristni R. Jónssyni landsliðsþjálfara U19 karla. Þá mættu Gunnleifur
Gunnleifsson, fyrirliði HK og Rakel Hönnudóttir fyrirliðið Þórs/KA ásamt Evu
Hafdísi Ásgrímsdóttur leikmanni Þórs/KA. Þessi æfing er hluti af
sparkvallaverkefni ÍF og KSÍ en verkefnið hófst árið 2007 og hefur mælst
ákaflega vel fyrir. Tilgangur þessa verkefnis er að auka áhuga og þátttöku
fatlaðra drengja og stúlkna í knattspyrnu.
|