Hörður með reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun

Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ býður upp á reiðnámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun. Hestamannafélagið Hörður í samstarfi við Hestamennt ehf. býður upp á 5 vikna reiðnámskeið í reiðhöll Harðar á Varmárbökkum í Mosfellsbæ.

Eftirfarandi námskeið eru í boði:

Námskeið 1 : 19. september – 17. október
Mánudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn
19. sept, 26. sept, 3.okt, 10.okt, 17.okt.
 
Námskeið 2 : 23. september – 21. október
Föstudagar kl. 14:45 15:45. 5 skipti í senn
23.sept,30.sept,7.okt,14.okt,21.okt.
 
Námskeið 3 : 24.október – 21. nóvember
Mánudagar kl. 14:45 - 15:45 . 5 skipti í senn
24.okt,31.okt,7.nóv,14.nóv,21.nóv
 
Námskeið 4 : 28.október – 25.nóvember
Föstudagar kl. 14:45 - 15:45. 5 skipti í senn
28.okt,4.nóv,11.nóv,18.nóv,25.nóv.

Fyrir hverja er námskeiðið:
Öll börn og ungmenni sem við einhvers konar fötlun eða skerta getu að stríða vegna sjúkdóma eða af öðrum ástæðum og sem hafa áhuga á að umgangast hesta eða vilja kynnast hestamennsku.

Markmið námskeiðsins:
 Eiga frábæra stund saman í skemmtilegur umhverfi
 Geti umgengist hesta af öryggi og óttaleysi
 Að kynnast hestinum og læra undirstöðuatriði í umhirðu hestsins.
 Lært undirstöðuatriði í reiðmennsku eftir getu hvers og eins
 Auka sjálfstæði og færni í samskiptum við hesta
 Að bæta líkamsvitund
 Að auka samhæfingu handa, fóta og skynfæra.
 Styrkja leiðtogahlutverk í samskiptum við hestinn.

Lagt er áhersla á fjölbreytni og að allir nemendur fái sem mest út úr námskeiðinu eftir þörfum hvers og eins.

Kennslan er í höndum reyndra leiðbeinanda með margra ára reynslu í reiðkennslu fatlaðra, sjúkraþjálfari verður til taks sem og aðrir aðstoðarmenn eftir þörfum.

Hvað er innifalið í námskeiðsgjaldi:
Öll kennsla og kennslugögn
Lagðir eru til hestar fyrir hvern og einn sem og allur útbúnaður til reiðar þar á meðal sérsmíðaðir hnakkar og annar útbúnaður eftir þörfum.
Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal í lok námskeiðs.

Námskeiðsgjald er 18.000 kr.

Frekari upplýsingar og skráning er á www.hordur.is eða hjá Auði G. Sigurðardóttur
s: 8997299/8986017
Netfang: audurs@gmail.com
Umsjónarmaður námskeiðsins er Súsanna Ólafsdóttir, reiðkennari.