Íþróttasamband Fatlaðra | miðvikudagur 6. júlí 15:06

Icelandair einn af aðalsamstarfsaðilum Íþróttasambands Fatlaðra

Nýlega var undirritaður samstarfssamningur milli Íþróttasambands Fatlaðra og Icelandair um ferðir íþróttafólks sambandsins á flugleiðum Icelandair.

Samningurinn sem nær til ársins 2007 felur meðal annars í sér að allt íþróttafólk og aðrir sem ferðast á vegum sambandsins til og frá Íslandi fljúgi með Icelandair á hagstæðustu fargjöldum sem bjóðast. Þá fær Íþróttasamband Fatlaðra ákveðna styrktarupphæð árlega greidda inn á viðskiptareikning sinn auk ákveðins fjölda flugmiða á ári á gildistíma samningsins. Flugleiðir er með þessum samningi einn af aðalsamstarfs og stuðningsaðilum Íþróttasambandsins vegna Ólympíumóts fatlaðra í Peking árið 2008.

Í tilefni af undirritun samningsins sagði Sveinn Áki Lúðvíksson formaður Íþróttasambands Fatlaðra að mikil ánægja væri innan sambandsins með áframhaldandi stuðning Icelandair við íþróttastarf fatlaðra hér á landi, en Icelandair hafa lengi verið einir af stærstu samstarfs- og stuðningsaðilum Íþróttasamband Fatlaðra. Það væri sambandinu mjög mikilvægt að svo öflugt fyrirtæki sem Icelandair sæi sér fært að koma til móts við þarfir sambandsins með svo myndarlegum hætti sem raun ber vitni.

Þorvarður Guðlaugsson, sölustjóri sem undirritaði samninginn fyrir hönd Icelandair lýsti yfir mikilli ánægju með það að félagið væri einn af aðal samstarfs- og stuðningsaðilum Íþróttasambands Fatlaðra. Það væri Icelandair afar mikilvægt að taka virkan þátt í að styðja við íþróttalíf landsins og væri samningur þessi hluti af þátttöku félagsins í stafi íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. Icelandair væri heiður sýndur með því að fá tækifæri til þess að taka þátt í því að efla íþróttir fatlaðra hér á landi

Á meðfylgjandi mynd eru Þorvarður Guðlaugsson, sölustjóri Icelandair (t.h.) og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Íþróttasambands Fatlaðra við undirritun samningsins.