Íþróttasamband Fatlaðra | miðvikudagur 7. júní 20:07

Visa Ísland og Íþróttasamband Fatlaðra undirrita samning

Visa Ísland og Íþróttasamband Fatlaðra (ÍF) hafa framlengt samstarfssamningi sínum. Samningurinn er til þriggja ára og er um er að ræða fjárhagslegan styrk sem er ætlaður til styrktar ÍF m.a. við undirbúning og þátttöku á Ólympíumóti fatlaðra í Peking 2008. Samningurinn gildir frá 2006 til 2008.

VISA og Ólympíuleikarnir tengjast órjúfanlegum böndum þar sem VISA Ísland er einnig styrktaraðili ÍSÍ og VISA International er alheims styrktaraðili Ólympíuleikanna og Ólympíumóts fatlaðra.
Visa Ísland hefur m.a markað sér þá stefnu með stuðningsáætlun sem ber heitið “Vonarstjörnur Visa” að beina styrkveitingum til þeirra einstaklinga sem taldir eru eiga möguleika á því að komast í Ólympíulið landa sinna.

Árangur fatlaðra íþróttamanna á undanförnum árum hefur vakið verðskuldaða athygli, íslenska íþróttafólkið hefur staðið sig afar vel á Ólympíumótum sem öðrum stórmótum fatlaðra. Þessi árangur er afrakstur markvissrar vinnu en Íþróttasambands Fatlaðra kappkostar að búa keppendur sína sem best undir þau verkefni sem framundan eru.
Íþróttasamband Fatlaðra mun fylgja sömu stefnu við undirbúning sinn fyrir Ólympíumótið sem haldið verður í Peking 2008 eins og fyrir undangengin Ólympíumót. Ljóst er að þar mun nýtt afreksfólk halda hróðri landsins og því nauðsyn á markvissum undirbúningi.
Styrkveiting til Íþróttasambands Fatlaðra, fellur að mati Visa Íslands vel að stefnu fyrirtækisins varðandi stuðning við framúrskarandi afreksfólk hvort heldur úr röðum fatlaðra eða ófatlaðra en fatlaðir íslenskir afreksmenn hafa um langt árabil verið á meðal þeirra bestu í heiminum.

Á myndinni sjást þeir Leifur Steinn Elísson, aðstoðarframkvæmdastjóri Visa Ísland og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður ÍF við undirritun samningsins. Með þeim á myndinni eru þau Kristín Rós Hákonardóttir og Jón Oddur Halldórsson en þau tóku þátt í Visa paralympic Cup, boðsmóti sem fram fór í Manchester í Englandi á dögunum.