Íslandsmót Íþróttasambands Fatlaðra í boccia, einstaklingskeppni verður haldið í íþróttahöllinni á Akureyri, dagana 2. - 3. Nóvember. Mótssetning verður kl. 10.00 föstudaginn 2. nóvember. Íþróttafélagið Eik á Akureyri er umsjónaraðili mótsins í samvinnu við boccianefnd Íþróttasambands Fatlaðra. Íþróttafélagið Eik er stofnað 16. maí árið 1978 og er fyrsta íþróttafélagið sem stofnað var sérstaklega fyrir þroskaheft íþróttafólk. Fyrsti formaður félagsins var Margrét Rögnvaldsdóttir en núverandi formaður er Haukur Þorsteinsson. Íþróttafélagið Eik tók fyrst þátt í Íslandsmóti á vegum ÍF árið 1980 og hefur allt frá þeim tíma lagt mikla áhersla á þátttöku í Íslandsmótum ÍF. Það hefur vakið athygli að landsbyggðarfélög eins og Eik hafa aldrei látið veðurfar eða ófærð spilla þátttöku sé þess nokkur kostur að komast á mótsstað. Íþróttasamband Fatlaðra tók ákvörðun um að halda Íslandsmót í boccia, einstaklingskeppni sem oftast á landsbyggðinni en mótin eru í umsjón aðildarfélaga á hverjum stað. Þessi ákvörðun er tekin í þeim tilgangi að kynna aðildarfélög ÍF um land allt og ekki síður er talið mikilvægt að mótahald sé ekki aðeins á Suðvesturhorni landsins. Kiwanisklúbburinn Kaldbakur hefur átt fulltrúa í stjórn félagsins og stutt markvisst þá starfsemi sem fram fer. Fulltrúar klúbbsins sjá um dómgæslu á Íslandsmótinu á Akureyri. Mótssetning er kl. 10.00 föstudag 2. nóvember. Keppt verður allan föstudaginn og keppni hefst aftur kl. 10.00 á laugardag. Mótinu lýkur með lokahófi á laugardagskvöld. Föstudagur 2. nóvember |