Íþróttasamband Fatlaðra | mánudagur 18. febrúar 22:03

Þorramót Fjarðar

Þorramót Fjarðar fór fram laugardaginn 16. febrúar. Þar kepptu félagar úr Firði við bæjarfulltrúa Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Álftaness. Mótið er árlegur viðburður og alltaf mikil stemming á staðnum og öllum boðið upp á veitingar áður en úrslit hefjast.