1.0. |
Innan ÍF skal starfa Special Olympics nefnd (skammstafað S.O.) skipuð þremur til fimm mönnum. Formaður ÍF skal vera formaður S.O. nefndar ÍF. Staðgengill formanns ÍF er varaformaður ÍF.
|
2.0 |
Verkefni nefndarinnar skulu vera eftirfarandi:
|
2.1 |
S.O. nefnd ÍF skal hafa til umfjöllunar helstu verkefni á vegum S.O. erlendis og vera umsagnaraðili um val þátttakenda og fararstjóra á mót SOI og SOE. Endanlegt val skal vera í höndum stjórnar ÍF.
|
2.2 |
S.O. nefnd ÍF skal skipuleggja Íslandsleika S.O. sem halda skal annað hvert ár. Aðildarfélög ÍF geta verið framkvæmdaaðilar þessarra leika í samráði við S.O. nefnd ÍF.
|
2.3 |
S.O. nefnd ÍF skal leitast við að kynna og útbreiða hugmyndafræði SOI og hafa yfirumsjón með því starfi sem varðar S.O. erlendis sem innanlands.
|
2.4 |
Stjórn ÍF styrkir S.O. nefnd ÍF fjárhagslega og hefur yfirumsjón með allri fjáröflun eins og gildir um annað starf á vegum ÍF.
|