Alþjóðaleikar Special Olympics eru haldnir fjórða hvert á en fyrstu leikar utan Bandaríkjanna voru í Evrópu 2003. Þá skipulögðu Írar glæsilega leika í Dublin með aðstoð þúsunda sjálfboðaliða. Það var söguleg stund þegar kyndilhlaupinu lauk með því að lögreglumenn frá Írlandi og N Írlandi komu saman með kyndilinn inn á leikvanginn á opnunarhátíðinni en það þóttu vera táknræn skilaboð um gildi samstöðu, friðar og vináttu. Árið 2007 voru leikarnir í Shanghai í Kína og árið 2011 í Aþenu í Grikklandi. Nú er aftur komið að Bandaríkjunum en næstu leikar verða í Los Angeles.25. júlí til 2. ágúst 2015. www.la2015.org
Opnunarhátíð fer fram í Los Angeles Memorial Coliseum en þar fóru fram opnunarhátíðir ólympíuleikanna 1932 og 1984. Gert er ráð fyrir 80 þúsund áhorfendum á opnunarhátíðina. Undirbúningsnefnd LA 2015 og ESPN munu tryggja alþjóðlega umfjöllun til áhorfenda um allan heim
Heiðursgestir leikanna verða Barack Obama Bandaríkjaforseti og kona hans Michelle Obama, ásamt Eric Garcetti borgarstjóri LA og Jerry Brown fylkisstjóra í Kalforníu
Þetta verður einn stærsti íþróttaviðburður ársins 2015 þar sem verða 7000 keppendur frá 177 löndum og gert er ráð fyrir allt að 30.000 sjálfboðaliðum. Keppnisgreinar eru 25 en þær eru; Badminton, boccia, borðtennis, blak, fimleikar, frjálsar íþróttir, golf, hjólreiðar, keila, körfubolti, knattspyrna, lyftingar, hjólaskautar, kajakróður, júdó, handbolti, maraþon, hestamennska, tennis, softball, þríþraut, strandblak, siglingar og tvennskonar sundkeppni
Samhliða íþróttakeppni verða fjölmargir viðburðir í gangi. Healthy athlete program er í boði fyrir alla keppendur en þar er heilsufar skoðað og metið af tannlæknum, augnlæknum, heyrnar og talmeinafræðingum, sjúkraþjálfurum, fótaaðgerðarfræðingum og fleiri fagaðilum. Margir hafa fengið gleraugu, heyrnartæki eða innlegg eftir slíka skoðun en allt er ókeypis fyrir keppendur. Athyglisvert verkefni hefur verið byggt upp fyrir 2-7 ára börn með þroskahömlun en þar er tilgangur að örva hreyfifærni og samhæfingu með æfingum í leikjaformi.
Kyndilhlaup verður um alla Ameríku þar sem lögreglumenn hlaupa með eld leikanna ásamt íþróttafólki á hverjum stað. Samstarf Special Olympics við íslensku lögregluna hófst haustið 2013 með samstarfi vegna Íslandsleika í knattspyrnu. Guðmundur Sigurðsson og Gunnar Schram hlupu kyndilhlaup fyrir Evrópuleika Special Olympics 2014. Ísland tekur í fyrsta skipti þátt í kyndilhlaupi fyrir alþjóðaleika en Guðmundur Sigurðsson verður í hópnum í LA Tveir íslenskir alþjóðahandboltadómarar dæma á mótinu, þeir Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson. Reiknað er með um 60 aðstandendum frá Íslandi til að fylgjast með leikunum.
Íþróttasamband fatlaðra sendir fjörutíu og einn keppanda á leikana. Íslendingar keppa í níu greinum; Badminton, boccia, fimleikum, frjálsum íþróttum, golfi, keilu, knattspyrnu, lyftingum, sundi. Ísland sendir í fyrsta skipti keppendur í „unified sport“ þar sem fatlaðir og ófatlaðir keppa saman en það verður í golfi og badminton.
Allir keppendur gista á háskólasvæðunum, UCLA og USC. Keppnisstaðir eru eftirtaldir; UCS; Sund, frjálsar UCLA; Knattspyrna, fimleikar LACC; Badminton, boccia, lyftingar Lucky Strike; Keila Griffith Park; Golf
Fimleikar;
Eydís Ásgeirsdóttir, Jóhann Fannar Kristjánsson Birkir Eiðsson, Erla Björg Haraldsdóttir öll í Gerplu. Þjálfarar eru Eva Gunnarsdottir og Sigurlín Jóna Baldursdóttir.
Lyftingar;
Vignir Unnsteinsson, ÍFR, Ólafur Aron Einarsson, Suðra. Guðmundur Ásbjörnsson, Suðra. Þjálfari er Hlynur Áskelsson
Sund;
Bjarki Skjóldal Óðni; Emil Björnsson, ÍFR, Tinna Rut Andrésdóttir, Óðni, Rakel Aradóttir Ösp, Ástrós María Bjarnadóttir NES
Þjálfarar eru Inga Maggý Stefansdóttir og Ólafur Þórarinsson
Frjálsar íþróttir;
Bryndís Brynjólfsdóttir NES, Héðinn Jónsson EIK, Bjarki Rúnar Steinarsson ÍFR, María Dröfn Einarsdóttir EIK Þjálfarar eru Ásta Katrín Helgadóttir og Egill Þór Valgeirsson
Badminton Unified;
Ómar Karvel Guðmundsson ÍVAR, Petra Dröfn Guðmundsdóttir Unified partner
Þjálfari er Jónas Sigursteinsson
Golf;
Elín Fanney Ólafsdóttir GK, Pálmi Þór Pálmason GR, Golf unified; Bjarki Guðnason GS Heiða Guðnadóttir GKj Unified partner. Þjálfari er Fylkir Guðmundsson
Boccia;
Vilhjálmur Þór Jónsson, NES, Bára Sigurðardóttur EIK. Þjálfari er Anna María Þórðardóttir
Keila;
Aldís Ósk Björnsdóttir og Vilhelm Már Sigurjónsson ÖSP. Þjálfari er Harpa Hauksdóttir
Knattspyrna:
Jón Alexander Guðmundsson, Sveinbjörn Guðmundsson, Jónas Ingi Björnsson, Andri Jónsson, Róbert Ragnarsson, Daníel Snær Gústavsson, Jón Reynir Gústafsson, Jón Arnar Guðbrandsson, Guðmundur Hafliðason - allir í Ösp
Jakob G Lárusson,Ragnar Ólafsson, Sigurður Guðmundsson, Konráð Ólafur Eysteinsson, Jósef William Daníelsson allir í NES Almar Þór Þorsteinsson SUÐRA
Þjálfarar eru Darri Mchahon, Birkir Þór Karlsson og fulltrúi KSÍ er Guðlaugur Gunnarsson
Fararstjórar eru Anna Karólína Vilhjálmsdóttir og Jóhann Arnarson. Þátttökulönd fá kvóta til að senda lækni eða sjúkraþjálfara með keppendum og Guðbjörg Ludvigsdóttir læknir fylgir íslenska hópnum.
Samtökin Special Olympics International (SOI) voru stofnuð af Kennedy fjölskyldunni 1968 og forseti SOI er Timothy Kennedy Shriver. Áhrif Kennedy fjölskyldunnar koma fram í öllu starfi samtakanna sem hafa náð gífurlegri útbreiðslu. Starfsemin byggist upp á því að skapa einstaklingum með þroskahömlun, tækifæri til þátttöku í íþróttastarfi þar sem virðing og jafnræði ríkir og allir eru sigurvegarar. Allir geta verið með, jafnt byrjendur sem lengra komnir. Fjölmargir Íslendingar hafa fengið tækifæri til þátttöku á alþjóðaleikum Special Olympics sem haldnir eru fjórða hvert ár. Auk íþróttastarfs stendur SOI fyrir alþjóðaverkefnum sem miða að því að bæta heilsufar, menntun og daglegt líf þessa hóps. Alþjóðaskrifstofa er í Washington og Evrópuskrifstofa í Brussel.
Umfang og glæsileiki alþjóðaleika Special Olympics líkist helst ólympíumótum en keppnisform er gjörólíkt. Engin lágmörk þarf á leikana og undankeppni fer fram þannig að allir keppa í jöfnum riðlum.
Þátttakan er aðalatriðið, allir keppa aðeins við sína jafningja og allir eiga sömu möguleika á verðlaunum. Hugmyndafræði Special Olympics byggir á gildi umburðarlyndis og jafnræðis þar sem áhersla er á þátttöku, ánægju, einstaklingsmiðaða færni og ekki síst vináttu.