Afreksstefna ÍF 2008 - 2012

1. Formáli

Afreksstefna ÍF er stefnumótandi ákvörðun æðstu forystu Íþróttasambands fatlaðra á Íslandi.Afreksstefna þessi er á ábyrgð stjórnar ÍF og er stjórnað afAfrekssviði ÍF í samstarfi við fagnefndir sérgreina sem stundaðar eru innan ÍF.
Afreksfólk á alþjóða mælikvarða eru þeir einstaklingar eða lið sem hafa getu til að vera í verðlaunasætum á álfu-, heimsmeistara- eða Ólympíumótum.

2. Markmið afreksstefnu ÍF

Að ÍF hafi ávallt á að skipa einstaklingum eða liðum, sem standast kröfur til keppni á alþjóðlegum mótum í sínum íþróttagreinum.Í því fellst;
-> 2.1 að íþróttamenn/lið ÍF vinni til verðlaunaá Evrópu-, Heimsmeistara- og Ólympíumótum
-> 2.2 að koma íþróttamönnum inn í úrslit á Evrópu-, Heimsmeistara- og Ólympíumótum

3. Framkvæmd afreksstefnu ÍF

Fagnefndum innan ÍF er falið að skilgreina innan sinna íþróttagreina þau viðmiðunarmörk sem hverju sinni flokkast sem árangur á alþjóðamælikvarða.Þessi viðmiðun ákvarðar síðan skipan í afreksflokka samanber lið 4.0 Afreksáætlun er unnin í samstarfi við félagsþjálfara eftir þeim afreksflokki semíþróttamaðurinn tilheyrir.Þar koma fram íþróttaleg markmið, skipulag þjálfunar, þátttaka á mótum, ferðalög, fjárhagsáætlun og annað.
Fagnefndirnar ásamt landsliðsþjálfara vinna verkefnaáætlun ársins fyrir hvern afreksflokk ásamt kostnaðaráætlun.
Viðmið fagnefnda ÍF ásamt verkefnaáætlun eru síðan lagðar fyrir Afrekssvið ÍF til samræmingar og stjórn ÍF til samþykktar.
Afrekssvið í samstarfi við fagnefndir, með samþykki stjórnar ÍF, ræður landsliðsþjálfara í viðkomandi íþróttagrein.Gerður skal skriflegur samningur við landsliðsþjálfara varðandi kaup og kjör, ráðningatíma og starfsvettvang.

3.1 Störflandsliðsþjálfara

Þegar ráðinn er landsliðsþjálfari til að starfa með fagnefnd sérgreinar eru verkefni hans meðal annars:

  • Að gera tillögu um val íþróttafólks inn í afrekshópa.
  • Að setja upp og stjórna æfingabúðum fyrir afrekshópa
  • Að gera tillögur til fagnefndar um þátttakendur á mót.
  • Að vinna að gerð afreksáætlana einstaklinga til samhæfingar þeirra vinnukrafta sem að slíku þurfa að koma.
  • Að vera tengiliður milli íþróttamanna og nefndarinnar. Auk þess sem landsliðsþjálfari er í samskiptum við Afrekssvið ÍF, læknaráð og fleira er lýtur beint undir stjórn ÍF og viðkemur íþróttalegum markmiðum.
  • Að vinna með fagnefnd að útbreiðslu íþróttarinnar, markmiðssetningu og framkvæmd móta.

4. Skipan afreksflokka

Afreksstefna ÍF byggir á þremur flokkum:
4.1 A-flokkur => afrekshópur(sbr. lið 2.1)
4.2 B-flokkur => gjaldgengir þátttakendur á stórmótum (sbr. lið 2.2)
4.3 C-flokkur => efnilegir íþróttamenn sem hafa möguleika á að ná langt verði aðstæður skapaðar í þá veru.

5. Fjármál

  • Stjórn ÍF ber fjárhagslega ábyrgð á allri afreks og íþróttastefnunni frá hverri fagnefnd. Útfærsla hverrar nefndar þarf þannig að lúta samræmingu Afrekssviðs ÍF og samþykkt stjórnar ÍF.
  • Kostnaður sem af afreksþátttökunni stafar sem og kostnaðarskipting milli félags og ÍF skal koma fram í fjárhagsáætlun.Þar skal einnig tíunduð sú stoðþjónusta sem ÍF leggur afreksfólki sínu til s.s. læknar, nudd, sjúkraþjálfun, tæki o.þ.h.
  • Stjórn ÍF setur fram skýrar reglur um kostnaðarhlut einstaklinga í verkefnum á hennar vegum.
  • Allir styrktarsamningar afreksfólks ÍF þurfa að vera kunnir stjórn ÍF og lúta samþykkis hennar.
  • Allir afreksmenn ÍF skulu hafa fastan, skriflegan samning við afreksmannasjóð í samræmi við reglur þar um.
  • Afreksmenn ÍF sem gera einkasamninga við fyrirtæki eða stofnanir skulu leggja samninga sína fyrir stjórn ÍF sem heimilt er að taka 20% af hverjum samningi til uppbyggingar á afreksíþróttum í viðkomandi greint.d. til greiðslu launa landsliðsþjálfara o.fl.