Fimmtudagur 27. mars 2014 14:41

Víðarr gefur öll verðlaun á Íslandsmótinu

Lionsklúbburinn Víðarr hefur um árabil gefið öll verðlaun til Íslandsmóta ÍF og í ár var engin undantekning þar á. Nýlega veitti Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður ÍF, viðtöku gjafabréfi að upphæð kr. 300 þúsund til kaupa á verðlaunapeningum en alls veitti klúbburinn 2.2 milljónum til hinna ýmsu góðgerðamála

Íþróttasamband fatlaðra færir félögum í Lionsklúbbnum Víðarri sínar bestu þakkir fyrir velvilja og ómetanlegan stuðning í gegnum tíðina

Til baka