Mánudagur 14. mars 2016 11:19

Hulda með tvö ný Íslandsmet í lyftingum


Íslandsmót ÍF í lyftingum fór fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík síðastliðinn sunnudag í lyftingaraðstöðu Massa. Lyftingadeild Massa sá um framkvæmd mótsins við öfluga og góða umgjörð.

Hulda Sigurjónsdóttir frá Suðra setti tvö ný Íslandsmet í flokki þroskahamlaðra kvenna í -80kg flokki en hún lyfti þá 65 kg í bekkpressu og 117,5 kg í réttstöðulyftu.

Úrslit mótsins

Í flokki hreyfhamlaðra
karlar


1. sæti Sigurjón Ægir

Í flokki þroskahamlaðra

Konur:


1.sæti  Guðrún Hulda Sigurjónsdóttr
2.sæti  Sigríður Sigurjónsdóttir

Karlar:

1.sæti  Ólafur Aron Einarsson
2.sæti  Jón Reynisson
3.sæti Guðmundur Ásbjörnsson

Mótaskýrsla mótsins

Hér má sjá fjölda mynda frá mótinu af Facebook-síðu Massa

Til baka