Miðvikudagur 22. apríl 2009 09:59

Sólheimaleikhúsið kynnir: Skógarheimar Sólheima

Frumsýning: Fimmtudaginn 23. apríl - klukkan 15:00
Leikritið Skógarheimar fjallar um mikilvægi þess að bursta tennur reglulega og hugsa vel um náttúruna. Persónur leikritsins koma úr hinum ýmsu áttum en allar eru þær þekktar meðal Íslendinga. Mikki, Lilli klifurmús, Hérastubbur bakari, Bakaradrengurinn, Karíus og Baktus, Soffía frænka, Jesper, Kasper og Jónatan koma öll úr smiðju Thorbjörns Egner. Lína Langsokkur kemur frá Astrid Lindgren og Rauðhetta úr ævintýrum Grims bræðra.

Leikritið er eftir Magnús J. Magnússon og skrifaði hann það fyrir Leikhópinn Lopa sem frumsýndi verkið árið 2006. Leikritið heitir upprunalega Skógarlíf en við fengum
aðeins að fikta í því eins og okkar er háttur og endurskýrðum það Skógarheimar, með
tilvísun í Sólheima. Við bættum einnig við nokkrum valinkunnum persónum eins og
Gísla, Eirík og Helga, Mjallhvíti, Dvergunum 7, o.fl. svo að allir gætu verið með,
söng og fjöri eins og tíðkast á Sólheimum.

Nánar...

Til baka