Olíuverslun Íslands hf – Olís hefur endurnýjað styrktarsamning við
Íþróttasamband fatlaðra. Að þessu sinni er um að ræða beinan fjárstuðning
vegna þátttöku Íslands í Norðurlandamóti fatlaðra í boccia sem fram fer í
Fredricia í Danmörku í maímánuði n.k.
Olís hefur um áratuga
skeið stutt starfssemi sambandsins á margvíslegan hátt en auk fjárhagslegs
stuðnings við NM í boccia býðst aðildarfélögum Íþróttasambands fatlaðra aðgangur
að ýmsum þeim tilboðum og fríðindum sem Olís hefur upp á að bjóða s.s.
Olískortum, fríðindakorti o.fl. Um slíkt er hægt er að sækja um á www.olis.is
Norðurlandamót fatlaðra í boccia er haldið annað hvert ár, til skiptis á
hverju Norðurlandanna.
Nú í dag er boccia án efa vinsælasta
keppnisgreinin sem fatlaðir leggja stund á. Vinsældir greinarinnar eru án efa
komnar til af því hversu einfaldur leikurinn er og allir sem á annað borð geta
kastað, ýtt eða sparkað kúlu, geta verið með. Á síðari árum hafa blindir og
sjónskertir byrjað að leggja stund á boccia en þá er notaður hljóðgjafi til þess
að staðsetja kúlurnar
Íþróttasamband fatlaðra hefur lagt metnað sin í að eignast íþróttamenn í fremstu röð í sem flestum íþróttagreinum og vill Olís með samningi þessum renna styrkari stoðum undir starfssemi Íþróttasambands fatlaðra.
Ljósmynd/ Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF og Sigurður K. Pálsson, markaðsstjóri Olís við undirritun nýja samningsins.