Miðvikudagur 8. ágúst 2012 10:29

Team Iceland 2012 - blíðskaparveður á Þingvöllum

Áður en tímarit ÍF, Hvati, fór í prentun skunduðum við á Þingvöll og treystum vor heit. Ólympíumótsfarar Íslands voru vitaskuld með í för þar sem við smelltum af þeim forsíðumynd fyrir Hvata sem nú er kominn í dreifingu en þar má lesa allt um Ólympíumótið og meira til um starf ÍF.

Við píndum okkar fólk einnig til að tjá sig fyrir framan myndavélina og þau fóru eins og alltaf létt með það. Til að slá botninn í málið settum við Ísland er land þitt í flutningi Fjallabræðra við myndbandið. Þetta gerist víst ekki mikið þjóðlegra.

Áfram Ísland

Íslenski hópurinn á Þingvöllum

Hvati - niðurhal (10,4 mb.)

Til baka