Siðareglur ÍF
Siðareglur þessar eru til leiðsagnar og eiga við um alla fulltrúa og starfsmenn ÍF. Til fulltrúa ÍF og starfsmanna teljast allir meðlimir stjórnar og nefnda, dómarar, þjálfarar, leiðbeinendur og sérhver þau sem starfa á vegum ÍF og bera ábyrgð á fjárhagslegum, tæknilegum, læknisfræðilegum eða stjórnunarlegum málefnfum hjá sambandinu.
Landsliðsfólk undirgengst agareglur landsliðsþjálfara og reglur um keppnisferðir sem byggja á þessum siðareglum.
- Stendur vörð um anda og gildi sambandsins.
- Ferð ekki í manngreinarálit, heldur kemur fram við aðra sem
jafningja.
- Hefur ávallt lýðræðisleg vinnubrögð í heiðri.
- Heldur aðildarfélögum sambandsins vel upplýstum og gerir þau
virk í ákvarðanatökum eins og hægt er.
- Ert ávallt til fyrirmyndar í framkomu og hegðun, bæði innan
sambandsins og utan þess.
- Gætir vandvirkni, heiðarleika og samviskusemi í starfi fyrir
sambandið og að orð og athæfi samrýmist starfi og umhverfi,
stað og stund.
- Tekur alvarlega þá ábyrgð sem þú hefur gagnvart sambandinu
og iðkendum aðildarfélaga þess.
- Notfærir þér aldrei stöðu þína hjá sambandinu til eigin
framdráttar.
- Misnotar aldrei aðstöðu þína eða ógnar velferð annars aðila,
svo sem með óviðeigandi hegðun, orðfæri, viðmóti, kynferðislegri
eða annars konar áreitni.
- Stofnar ekki til óviðeigandi sambands við annan aðila innan
sambandsins.
- Sýnir ábyrg rafræn samskipti og netnotkun.
- Sýnir ábyrgð og trúmennsku í meðferð fjármuna og eigna
sambandsins.
- Gætir hófs í umgengni við áfengi, tóbak og önnur vímuefni
og ert öðrum fyrirmynd í þeim efnum.
- Gætir þess að eiga gott samstarf við stjórn, starfsmenn og
nefndafólk sambandsins og stuðlar að eindrægni og samhug
og gætir virðingar í umtali.
- Tekur og beitir gagnrýni á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.