Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 29. desember 2008 12:47 |
Jólaball CP félagsins og SLF |
Jólatré, jólasveinar- með pakka og flottar veitingar. Verð 500 krónur fyrir 12 ára og eldri Reiðufé - enginn posi verður á staðnum |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 25. desember 2008 14:14 |
Gleðileg jól |
|
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 18. desember 2008 15:15 |
Nýárssundmót ÍF 4. janúar 2009 |
Mótið hefst kl. 15:00 en upphitun kl. 14:00 og heiðursgetur á mótinu verður Halldór Guðbergsson formaður Öryrkjabandalags Íslands. Sjómannabikarinn var fyrst veittur árið 1984 en þá var það Sigrún Pétursdóttir úr ÍFR sem fékk hann með 482 stig fyrir 50 m. baksund. Á mótinu er ekki endilega sá sem fyrstur eða fyrst kemur í mark sem vinnur besta afrekið heldur sá eða sú sem nær bestum tíma miðað við sinn fötlunarflokk. Skráningaeyðublöð hafa þegar verið send út til aðildarfélaga ÍF og mun mótaskrá sem og keppnisdagskráin liggja fyrir milli jóla og nýárs. Mynd: Frá Nýárssundmóti ÍF 2008 |
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 16. desember 2008 11:37 |
Sérútgáfa Hvata kom út í gær með Fréttablaðinu |
Stjórn ÍF tók á dögunum þá ákvörðun að ekki væri við hæfi að gefa út hið veglega tímarit Hvata að þessu sinni þegar litið væri til þjóðfélagsaðstæðna en hvert eintak Hvata hefur að jafnaði verið um 60 blaðsíður í vandaðri prentun. ÍF hefur gefið út Hvata síðastliðin 18 ár og er hlutverk blaðsins að segja frá og kynna starfsemi sambandsins. Ákveðið var að leita ekki til einstaklinga og fyrirtækja eftir styrktarlínum og því þessi leið með Fréttablaðsútgáfu farin að þessu sinni. Í blaðinu má finna grein um árangur íslensku keppendanna á Ólympíumóti fatlaðra og fleiri skemmtilega fróðleiksmola um það sem framundan er og það sem Íþróttasamband fatlaðra stendur fyrir. Það er því um að gera að næla sér í Fréttablað gærdagsins og tryggja sér fjórblöðunginn af Hvata. Mynd: Forsíða Hvata í Fréttablaðinu í gær. Mynd frá lokaathöfn Ólympíumóts fatlaðra í Peking 2008. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 12. desember 2008 14:31 |
Íþróttafélagið Ægir er 20 ára í dag |
Boðið verður upp á veitingar, myndlistasýningu af jólakortum og þá verður búið að setja upp lítinn bocciavöll þar sem gestir geta reynt sig. Einnig verða aðrar óvæntar uppákomur í boði og vonast er til þess að sem flestir sjái sér fært um að mæta. Íþróttasamband fatlaðra óskar Ægi innilega til hamingju með þennan merka áfanga! |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 11. desember 2008 16:08 |
Katrín undirbýr sig fyrir Idaho: Sýnir í jólagleði Bjarnarins |
Katrín mun taka þátt í jólagleðinni þar sem hún tekur þátt í hópatriði og síðar í sýningunni mun hún sýna þá dansæfingu sem hún mun framkvæma á Alþjóða vetrarleikunum í Idaho. Katrín hefur verið í þjálfun hjá Helgu Olsen og tekið miklum framförum og í samtali við umsjónarmann heimasíðu ÍF í gær kvaðst Katrín mjög spennt fyrir Bandaríkjaferðinni. Fyrir áhugasama er jólagleði Bjarnarins annað kvöld, föstudaginn 12. desember, frá kl. 19:00-21:00. Mynd: Katrín er ansi sleip á svellinu! |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 11. desember 2008 12:37 |
Myndasyrpa o.fl. frá Íþróttafólki ársins |
Fjölmiðlar létu sig ekki vanta og má sjá þeirra umfjöllun hér að neðan: MBL.IS: Vísir.is: Sjónvarpsfréttir RÚV: |
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 10. desember 2008 16:00 |
Íþróttamaður og íþróttakona ÍF 2008 |
Umsögn um Sonju Sigurðardóttur. Þá hlaut Harpa Björnsdóttir formaður Ívars á Ísafirði Guðrúnarbikarinn. Sjá umsögn hér. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 4. desember 2008 10:13 |
Norræna barna- og unglingamótið í Eskilstuna |
|
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 3. desember 2008 17:04 |
Adolf Ingi tilnefndur til Hvatningarverðlauna ÖBÍ |
Adolf Ingi er tilnefndur fyrir að auka umfjöllun um íþróttir fatlaðra en hann og Óskar Nikulásson fóru mikinn í Peking á Ólympíumóti fatlaðra fyrr á þessu ári og þá hefur Adolf fjallað vel um önnur mót og aðrar íþróttir hjá fötluðum. ÖBÍ veitir þrenn verðlaun, til fyrirtækis, stofnunar og einstaklings, sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu. Verðlaunin verða afhent og kunngjörð í Salnum í Kópavogi í kvöld Mynd: Adolf Ingi vílaði það ekki fyrir sér að taka Sonju Sigurðardóttur á hestbak á Kínamúrnum á Ólympíumóti fatlaðra í Kína. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 3. desember 2008 09:40 |
Guðbjörg og Guðrún á fróðlegu námskeiði í Noregi |
Fyrri daginn var farið yfir IPC flokkunarkóðann (International Paralympic Committee Classification Code and International Standards). Hann inniheldur þær reglur sem fara þarf eftir þegar íþróttafólk með fatlanir er flokkað. Þar eru reglur um hverjir mega flokka og hvernig skuli standa að flokkunum. Einnig eru reglur um áfrýjanir og kærur. Hlutverk alþjóðlegra nefnda (International Paralympic committee, IPC) og landsnefnda (National Paralympics Committee, NPC) voru einnig útlistaðar. Fyrirlesarinn var Terrie Moore frá Kanada, en hún er ein af þeim sem sömdu þetta regluverk. Eftir hennar inngang var hópnum skipt upp og rætt var nánar um hlutverk NPC og farið yfir lið númer 16.3 sem snýr að hlutverki þess. Þarna sköpuðust góðar og fróðlegar umræður og leiddist talið fljótt út í að reyna að hefja norrænt samstarf til að sinna þessum störfum. Mikill áhugi er fyrir því sérstaklega þar sem bæði fáir sjá um að flokka innan hverrar íþróttar og oft eru fáir iðkendur sem þarf að flokka innan hverrar íþróttargreinar. Til dæmis eru bara 2 í Noregi og Svíþjóð sem sjá um að flokka íþróttamenn í sund í hvoru landi. Í Noregi eru þau ekki að flokka nema 4-6 einstaklinga á ári. Það er því mikill vilji fyrir því að reyna að sameina þessa krafta. Það myndi bæði gera þjónustuna við íþróttamennina betri og skilvirkari og þeir sem að flokka yrðu hæfari í sínu starfi þar sem að þeir yrðu að flokka fleiri á hverju ári. Seinni daginn var námskeið á vegum CP ISRA (Cerebral Palsy International Sports and Recreation Association) um hvernig á að flokka íþróttafólk í boccia og almennt um flokkanir hjá íþróttafólki sem tilheyra CP ISRA flokknum. Þetta var mjög fróðlegt og í lok dagsins voru 4 íþróttamenn flokkaðir af hópnum. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 2. desember 2008 16:42 |
Opna Reykjavíkurmótið í frjálsum: Úrslit |
60 mhlaup karlar Heildarúrslit mótsins má finna hér! |
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 2. desember 2008 10:42 |
Sjálfboðaliðakort ÍF 2008 |
Hlutverk þessa hóps í starfi íþróttahreyfingarinnar hefur ekki verið skilgreint sérstaklega hér á landi. Í starfi Special Olympics International er lögð mikil áhersla á skráningu sjálfboðaliða og hlutverk þeirra. Staðreyndin er sú að íþróttahreyfingin treystir á sjálfboðaliðastarf. Þrátt fyrir áratuga hefð er mikilvægt að vinna stöðugt að því skapa hvetjandi umgjörð sem gerir sjálfboðaliðastarf áhugavert. Margir eiga í erfiðleikum í dag vegna utanaðkomandi aðstæðna og hafa þörf fyrir að fá hvatningu frá nánasta umhverfi. Íþróttahreyfingin þarf að bregðast við því eins og önnur samtök. Einnig geta slíkar aðstæður skapað aukna þörf hjá fólki til að sinna verkefnum sem eru hvetjandi og áhugaverð t.d. innan íþróttahreyfingarinnar. Þannig geta ný tækifæri verið til staðar á umbreytingartímum. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 1. desember 2008 17:21 |
Myndasafn: Íslandsmót ÍF í 25m. laug |
|
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 1. desember 2008 15:11 |
11 Íslandsmet féllu á Íslandsmóti ÍF í 25m. laug |
Íslandsmet Pálma á mótinu: Önnur Íslandsmet settu eftirtaldir sundmenn: |
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 1. desember 2008 12:56 |
Myndasafn: Opna Reykjavíkurmótið í frjálsum |
|
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 29. nóvember 2008 15:17 |
Líf og fjör í Laugardal |
Núna er að hefjast á slaginu 15:00 Íslandsmót ÍF í 25 m. laug í innilauginni í Laugardal og hafa keppendur þegar tekið við að hita upp og er von á skemmtilegri keppni. Nánar frá mótunum síðar... |
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 28. nóvember 2008 12:41 |
Sportið mitt nýr sjónvarpsþáttur á ÍNN í kvöld |
Þátturinn verður jákvæður og skemmtilegur og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Stjórnendur þáttarins hafa mis mikla reynslu á fjölmiðlun en Sverrir hefur unnið við fjölmiðla síðan 1991 en Sigurður Ingi byrjaði fyrir þremur árum að fikta við það en hann kemur nálægt sportinu á annan hátt en hann er leikmaður 3 deildar liðsins KFS. Þannig að sportið hefur lengi verið nálægt þeim félögum í góðan tíma enda unnið saman í sportinu í 3 ár . Þátturinn verður sýndur á sjónvarpstöðinni ÍNN og er hægt að ná henni á fjölvarpinu og á sjónvarpi Símans. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 27. nóvember 2008 16:07 |
Fjármálaráðstefna ÍSÍ |
Dagskrá verður eftirfarandi: 13:00 Setning – Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ Ráðstefnan er öllum opin. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 26. nóvember 2008 15:10 |
Aðalfundur INAS-FID Evrópu: Þórður varaformaður |
Auk venjulegra aðalfundastarfa var fjallað um stöðu og stefnu samtakanna vegna aðalfundar INAS-Fid sem fram fer í aprílmánuði 2009. Þá var kosið til ýmissa embætta innan samtakanna þar sem Þórður Árni var m.a. kosinn nýr varaformaður þeirra. Athygli er vakin á nýrri heimasíðu samtakanna www.inas-fid-europe.com |
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 25. nóvember 2008 17:31 |
Kristín Rós gefur út bók: ÍF fékk fyrsta eintakið |
Bókin er öll hin glæsilegasta skreytt skemmtilegum og áhrifaríkum myndum af ferli Kristínar sem er vægast sagt glæsilegur í alla staði. Kristín Rós Hákonardóttir var einhver fremsti íþróttamaður þjóðarinnar um árabil og hóf að æfa sund með ÍFR árið 1982. Ferillinn spannar 22 ár en að honum loknum hafði Kristín keppt á fimm heimsmeistaramótum, fimm ólympíumótum og sett samtals 66 heimsmet og 9 ólympíumet.
Kærasta Kristín Rós |
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 25. nóvember 2008 15:31 |
Amanda Boxtel - ótrúleg baráttukona - |
Amanda lamaðist í skíðaslysi og hefur verið í hjólastól síðan þá. Eftir slysið hélt hún áfram að stunda skíði og stofnaði Challenge Aspen, fyrirtæki sem sérhæfir sig í útivist og vetraríþróttum fyrir fatlaða. Amanda er með gífurlegan baráttuvilja og ætlar sér að standa upp aftur. Hún hefur sótt sérhæfða meðferð til Indlands en margir hafa efast um þessa baráttu hennar og haft áhyggjur af óraunhæfum væntingum. "Human Embryonic Stem Cell Therapy has restored life into my limbs and HOPE back into my vocabulary. While my spinal cord injury took away my ability to walk, it didn't take away my ability to dream. I am making my dream my reality one baby step at a time." Amanda heldur úti upplýsingasíðu á netinu og margt fólk fylgist með baráttu hennar auk fjölmiðla. Á myndbandinu sem Amanda sendir er hún komin út á götu í Delhi í Indlandi, í göngugrind!!! |
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 21. nóvember 2008 13:42 |
Alþjóðavetrarleikar Special Olympics Idaho 2009 |
![]() Íþróttasamband Fatlaðra sem er umsjónaraðili Special Olympics á Íslandi sendir 1 keppanda á alþjóðaleika Special Olympics sem haldnir verða Boise, Idaho, USA dagana 7. – 13. febrúar 2009. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 21. nóvember 2008 10:51 |
Ráðstefna Special Olympics á Kýpur |
![]() Á dögunum var haldin ráðstefna á vegum Special Olympics á Kýpur en ráðstefnan var haldin í tengslum við Smáþjóðaleika Special Olypics í knattspyrnu. Guðlaugur Gunnarsson, starfsmaður KSÍ, sótti ráðstefnuna fyrir hönd Íþróttasambands Fatlaðra. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 20. nóvember 2008 13:24 |
Evrópuráðsfundur EEAC og Evrópuráðstefna Special Olympics 2008 |
Dagana 12. – 14. nóvember var haldinn í Búkarest fundur Evrópuráðs Special Olympics (EEAC). Fundurinn var haldin í tengslum við Evrópuráðstefnu SOE. Mynd: Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, Íslandi, Galina Dzyurych Belarus og Boguslaw Galazka, Póllandi fengu afhenta viðurkenningu fyrir störf sín hjá EEAC en þau höfðu öll lokið átta ára tímabili í ráðinu sem er hámarkstími kjörins fulltrúa. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 20. nóvember 2008 12:37 |
Kynningarfundur um nýjar lyfjareglur |
|
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 20. nóvember 2008 11:59 |
Afreksráðstefna ÍF |
|
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 14. nóvember 2008 14:51 |
Opna Reykjavíkurmótið í frjálsum íþróttum |
Greinar sem í boði verða eru: 60m hlaup, 200m hlaup, langstök m. atrennu og kúluvarp Skráningarblöð verða send aðildarfélögum ÍF á næstunni en nánari upplýsingar um mótið veitir Haukur Gunnarsson á Haukur.gunnarsson@tollur.is |
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 12. nóvember 2008 17:11 |
Íslandsmót ÍF í sundi |
|
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 12. nóvember 2008 17:00 |
Opin æfing í borðtennis hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík |
Hvatning til einstaklinga og aðstandenda að nýta þetta tækifæri
Óskað er eftir því að þetta tilboð verði vel kynnt en æfingin er opin öllum fötluðum, þó markhópur nú séu hreyfihömluð börn og unglingar. Allir aldurshópar eru velkomnir og einnig fólk með aðrar fatlanir. Þeir sem ekki treysta sér til að prófa að spila geta komið og skoðað aðstæður, horft á og prófað síðar. Vinnum saman að því að rjúfa félagslega einangrun |
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 10. nóvember 2008 11:54 |
Samstarf við Sérsambönd ÍSÍ |
Íþróttasamband Fatlaðra hefur það að markmiði að auka enn frekar samstarf við Sérsambönd ÍSÍ. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 7. nóvember 2008 14:56 |
Dagskrá afreksráðstefnu ÍF 2008 |
Afreksráðstefna ÍF Til afreksráðstefnunnar er boðið formönnum aðildarfélaga ÍF, þjálfurum, landsliðsþjálfurum ÍF, fulltrúum íþróttanefnda og stjórnarfólki ÍF. Umsjón með ráðstefnunni og aðalfyrirlesarar eru Kári Jónsson, landsliðsþjálfari ÍF í frjálsum íþróttum og Ingi Þór Einarsson, formaður sundnefndar ÍF. Án efa verða líflegar umræður um stefnumörkun afreksíþrótta fatlaðra og leiðir til að fatlað íslenskt íþróttafólk verði áfram í fremstu röð fatlaðra afreksmanna í heiminum. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 7. nóvember 2008 12:11 |
Jólakort IF 2008 |
Íþróttasamband Fatlaðra gefur aðildarfélögum sínum 1000 jólakort og þau félög sem þess óska fá kort á kostnaðarverði. Sala jólakorta ÍF er ein aðalfjáröflun félaganna. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 1. nóvember 2008 15:16 |
Íslandsmótið í boccia hjá RÚV |
RÚV lét sig ekki vanta í Laugardalshöll um síðustu helgi þegar Íslandsmótið í einliðaleik í boccia fór fram. Rúmlega 200 keppendur tóku þátt á mótinu sem tókst vel til í alla staði enda þaulvant fólk á ferðinni hjá Ösp sem var mótshaldari að þessu sinni. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 27. október 2008 15:12 |
Íslandsmótið í boccia í einliðaleik í Laugardalshöll |
Úrslit mótsins , myndir á www.123.is/if |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 23. október 2008 10:52 |
Sonja fékk fyrsta eintakið beint úr prentsmiðju |
Óhætt er að segja að Jónína sé eftirtektarsöm en hún komst yfir síðasta eintak af Hvata, tímarit Íþróttasambands fatlaðra, og þar sá Jónína kynningu á Ólympíumótsförum Íslands. Nokkrar laufléttar spurningar voru lagðar fyrir íslensku keppendurna í Hvata þar sem kom í ljós að uppáhaldsbók Sonju var „Kossar og ólífur.“ Bókin er eftir Jónínu og nýjasta bókin Svart & hvítt er sjálfstætt framhald fyrri bókarinnar. Sonja var að vonum ánægð með framtak Jónínu en Svart & hvítt er væntanleg í verslanir um land allt miðvikudaginn 29. október næstkomandi. Svart & hvítt er sjálfstætt framhald unglingabókarinnar Kossar og ólífur sem hlaut góðar viðtökur gagnrýnenda og lesenda. Fyrri bókin kom út á svipuðum tíma í fyrra en Forlagið gaf út báðar bækurnar. Sonja fékk bókina afhenta föstudaginn 10. október síðastliðinn en Svart & hvítt er ekki væntanleg í verslanir fyrr en næsta miðvikudag. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 22. október 2008 12:29 |
EM fatlaðra á Spáni: Mikil upplifun |
Skemmtilega grein um för þeirra Harðar og Rudolfs má lesa inn á golffréttasíðunni Kylfingur.is: Mynd: Rudolf hitti fyrir á Spáni heimsfræga kylfinginn Sergio Garcia. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 21. október 2008 10:41 |
Þjálfararáðstefna ÍF 2008 |
Skráningarfrestur á ráðstefnuna er til laugardagsins 1. nóvember. Umsjón með dagskrá hafa þeir Kári Jónsson, landsliðsþjálfari ÍF í frjálsum íþróttum, og Ingi Þór Einarsson formaður sundnefndar ÍF. Vinsamlega kynnið fyrirhugaða ráðstefnu fyrir þjálfurum aðildarfélaganna. Vonast er til þess að þjálfarar frá hverju félagi sæki ráðstefnuna en einnig er mjög æskilegt að formenn eða fulltrúar stjórna aðildarfélaga sjái sér fært að vera viðstaddir ráðstefnuna. Málefni sem þar verður tekið fyrir varðar afreksfólk framtíðarinnar sem sjálfsagt má finna í hverju félagi! Mynd: Ingi Þór Einarsson formaður sundnefndar ÍF og einn landsliðsþjálfara ÍF í sundi að störfum á Ólympíumóti fatlaðra í Peking 2008. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 20. október 2008 17:08 |
Myndasafn: Hörður sterkastur- jafnt í sitjandi flokki |
,,Þetta réðst ekki fyrr en í síðustu greinunum. Við þurftum að kalla út Ísspor til þess að bæta við bikar í sitjandi flokki og þetta gefur bara góð fyrirheit fyrir keppnina á næsta ári," sagði Arnar Már sæll með árangur helgarinnar. Arnar Már er lyftingaþjálfari hjá ÍFR og landsliðsþjálfari í lyftingum á vegum ÍF. Keppt var víðsvegar um Reykjavík frá föstudegi til laugardags þar sem kraftajötnarnir sýndu allar sínar bestu hliðar. Við minnum á að inni á myndasíðu ÍF er komið myndasafn frá föstudeginum á mótinu þar sem keppendur reyndu fyrir sér í Smáralind í hrikalegum aflraunum. Myndasafnið má nálgast hér: http://album.123.is/?aid=121307 |
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 20. október 2008 15:51 |
Íslandsmótið í boccia í einliðaleik í Laugardalshöll um helgina |
Lokahóf Íslandsmótsins fer svo fram á sunnudagskvöldið í Fjörukránni í Hafnarfirði að víkingastíl þar sem Friðrik Alexandersson verður veislustjóri. Lionsklúbburinn Víðarr gefur öll verðlaun á mótið að þessu sinni og þá munu nemendur við Fjölbrautaskólann í Breiðholti aðstoða við dómgæslu á mótinu. Dagskrá mótsins Laugardagur 25. oktober 2008: 10:00 - 11:40 U flokkur úrslit Sunnudagur 26. oktober 2008: |
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 20. október 2008 11:50 |
Lokauppgjör Reykjavíkurmaraþons Glitnis |
Starfsmenn Glitnis, viðskiptavinir og aðrir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoninu hlupu til góðs og söfnuðu áheitum að upphæð 114.550 kr. fyrir ÍF. Alls voru 10.719 sem hlupu um borgina í ágúst og vill ÍF koma á framfæri innilegu þakklæti til þeirra sem styrktu góð málfeni í hlaupinu sem og til þeirra sem hlupu fyrir hönd ÍF. Starfsmenn Össurar söfnuðu alls 315.000 kr. fyrir ÍF og aukalega bættust við 114.550 kr. þar sem aðrir hlauparar styrktu ÍF. Samtals komu því 429.550 kr. í hlut ÍF þetta árið. Kærar þakkir fyrir okkur! Ykkar framlag er ómetanlegt. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 16. október 2008 15:37 |
Opnun umsóknarsvæðis Ferðasjóðs íþróttafélaga |
Fyrir þá sem til þekkja er fyrirkomulag umsókna svipað og í fyrra en á umsóknarsíðunni sjálfri eru ítarlegri útskýringar um hvernig bera eigi sig að við umsókina. Umsóknarsvæðið má nálgast á þessari slóð: http://ns4.olympic.is/ferdastyrkir/ Hvert félag eða deild á ekki að þurfa að stofna nema eina umsókn þar sem hægt er að setja eins margar ferðir og þurfa þykir inn á einu og sömu umsóknina. Umsóknarfrestur fyrir árið 2008 rennur út 12. janúar 2009 en að þessu sinni eru 60 milljónir til úthlutunar í sjóðnum. Afar brýnt er að íþróttahreyfingin nýti sér þennan styrkmöguleika svo íþróttaforystan og ríkisvaldið fái góða yfirsýn yfir þennan stóra kostnaðarlið í rekstri íþróttafélaga. Héraðssambönd og íþróttabandalög eru hvött til að fylgja þessu máli vel eftir í héraði til að tryggja að íþróttahreyfingin á viðkomandi svæði verði ekki af styrkmöguleikum. Frétt um málið á heimasíðu ÍSÍ: |
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 15. október 2008 12:25 |
Mannauður sem ekki verður metinn til fjár |
Gísli Einarsson, yfirlæknir á Landspítala og Magnús B. Einarsson, fyrrv. læknir á Reykjalundi störfuðu með ráðinu til fjölda ára en hafa nú dregið sig út úr því starfi. Þeir hafa skilað gífurlega mikilvægu starfi og eru áfram liðsmenn ÍF sem hægt er að leita til þegar þörf er á. Ludvig Guðmundsson, formaður læknaráðs ÍF hefur verið fulltrúi læknaráðs ÍF í fjölmörg ár og er ötull að afla nýrra liðsmanna. Hann hefur lagt áherslu á að í læknaráði ÍF séu ekki aðeins læknar, heldur einnig sjúkraþjálfari, sálfræðingur og hjúkrunarfræðingur. Á fundi læknaráðs ÍF þann 13. september var staðfest að í ráðinu eru nú læknar, sálfræðingur, hjúkrunarfræðingur og sjúkraþjálfari. Læknaráð ÍF október 2008 Íþróttasamband Fatlaðra hefur byggt starfsemi sína á sjálfboðaliðastarfi fjölda fólks sem gefið hefur kost á sér í hinar ýmsu nefndir og ráð sambandsins. Sérgreinanefndir starfa að uppbyggingu einstakra íþróttagreina og ýmis sérráð og nefndir starfa að afmörkuðum verkefnum. Þeir sem kynna sér starfsemi ÍF gera sér fljótlega grein fyrir því að sú umfangsmikla starfsemi og fjölbreyttu verkefni sem í gangi eru kalla á sérfræðiþekkingu á ýmsum sviðum. Skrifstofa ÍF þar sem starfa þrír starfsmenn heldur utan um heildarstarfsemi ÍF og Special Olympics. Stjórn og starfsmenn ÍF hafa reynt að stuðla að jákvæðu umhverfi og umgjörð fyrir þá sem vilja leggja starfinu lið og traust samskipti eru ráðandi. Það er öllum ljóst að í nútímasamfélagi getur reynst erfitt að fá sjálfboðaliða til starfa. Framlag sjálfboðaliða í starfsemi ÍF er forsenda öflugs starfs og þar er mannauður til staðar sem ekki verður metinn til fjár. Á tímum samdráttar og erfiðleika í efnahagslífinu sem snertir íþróttahreyfinguna fjárhagslega ekki síður en önnur félagasamtök er mikilvægt að meta að verðleikum aðra þá þætti sem starfið byggist á. Mynd: Ludvig Guðmundsson læknir að störfum á Ólympíumótinu í Peking. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 13. október 2008 13:36 |
Met slegið í lyfjaprófunum í Peking |
Alls voru gerð 1155 lyfjapróf á Ólympíumóti fatlaðra og 317 þeirra voru gerð utan Sir Philip Craven formaður IPC sagði á heimasíðu IPC: "Þó IPC hafi ekki náð sínu Tveir íslenskir keppendur voru lyfjaprófaðir í Peking en það voru lyftingamaðurinn |
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 10. október 2008 15:23 |
Tveir Íslendingar á EM fatlaðra |
Hörður, sem byrjaði að stunda golf fyrir 40 árum, sagði í samtali við Kylfing.is að nú væri verið að brjóta blað í sögu Golfsamtaka fatlaðra því þetta er í fyrsta skipti sem keppandi sem að frumkvæði GSFÍ hóf að iðka golf er sendur á EM. Hægt er að lesa greinina í heild sinni á Kylfingur.is með því að smella á tengilinn hér að neðan: |
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 10. október 2008 14:58 |
Óskað eftir dómurum í sjálfboðastörf á Íslandsmóti |
Til að mótið megi lukkast sem best þarf á mörgum sjálfboðaliðum að halda og þá sérstaklega í dómgæslu. Óskað er eftir því að sem flestir taki höndum saman og bjóði sig fram til starfans, bæði reyndir jafnt sem óreyndir. Margir hafa þekkingu á dómgæslu og ritarastörfum á viðlíka mótum en þeir sem hafa áhuga á að læra út á hvað þessi leikur gengur geta boðið sig fram og sótt námskeið í bocciadómgæslu og öðrum störfum. Námskeiðið verður haldið nokkrum dögum fyrir mót. Allar upplýsingar veitir Ólafur formaður Aspar í síma 899 8164 eða á netfanginu olliks@simnet.is |
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 6. október 2008 15:51 |
Flottar tímabætingar á Fjarðarmótinu |
Þrátt fyrir að skammt sé liðið á sundtímabilið sáust frábærar tímabætingar sem gefa góð fyrirheit um það sem koma mun þegar líður á veturinn. Úrslit mótsins er hægt að sjá með því að smella á tengilinn hér að neðan: http://fjordur.com/Default.aspx?tabid=1056 Þá hefur ÍF sett inn myndasafn frá mótinu á myndasíðuna sína www.123.is/if en tengill á myndasafnið frá Fjarðarmótinu er hér: |
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 6. október 2008 10:58 |
ÍF sótti veglegt boð forseta að Bessastöðum |
Ólafur Ragnar bauð hópinn velkominn á þjóðarheimilið og sagði m.a. í ræðu sinni að sigur þeirra íþróttamanna sem komust fyrir Íslands hönd á Ólympíumót fatlaðra sem og Ólympíuleikana sjálfa væri mikill sigur út af fyrir sig. Þá nefndi Ólafur að hann hefði verið ákaflega stoltur af því að Ísland skyldi ávallt senda jafn vaskar sveitir á þessi stóru mót þar sem aðrar og jafnvel fjölmennari þjóðir ættu sumar hverjar ekki fulltrúa eða þá mjög fáa úr sínum röðum. Forseti beindi svo orðum sínum til Ólympíumótsfara ÍF þegar hann sagði að þessir fimm einstaklingar, Jón Oddur, Þorsteinn, Sonja, Eyþór og Baldur væru öðru fólki með fötlun mikill innblástur og fyrirmynd fyrir afrek sín á íþróttasviðinu. Hópur ÍF fékk svo að litast um á Bessastöðum þar sem marga gersemina bar fyrir augu á borð við gjafir frá sveitarfélögum hér innanlands sem og virtum þjóðhöfðingjum víðsvegar að úr heiminum. Íþróttasamband fatlaðra þakkar kærlega fyrir mótttöku þeirra forsetahjóna að Bessastöðum. Mynd: Keppendur Íslands á Ólympíumóti fatlaðara í Peking 2008 ásamt forsetahjónunum Ólafi Ragnari og Dorrit. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 3. október 2008 10:32 |
Sterkasti fatlaði maður heims 17.-18. október |
„Þetta er eina mótið sinnar tegundar í heiminum og er haldið í nafni Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík. Mótið verður stærra með hverju árinu og búist er við harðri keppni þetta árið. Fjölmiðlar hérlendis hafa jafnan sýnt mótinu mikinn áhuga og því von á skemmtilegri umfjöllun en ég skora á sem flesta að leggja leið sína á keppnisstaðina og fylgjast með þessum afreksmönnum í hrikalegum aflraunum,“ sagði Arnar. Föstudaginn 17. október verður keppt í Smáralindinni frá kl. 14:00 en laugardaginn 18. október verður farið víða og hefst keppni kl. 10.00 á Fjörukránni. Þaðan verður farið í Intersport í Lindum kl. 13:00 og lýkur keppni í ÍFR Húsinu að Hátúni 14 í Reykjavík. Keppni í ÍFR húsinu hefst kl. 16:00 en þar verður sterkasti fatlaði maður heims í hjólastólaflokki og standandi flokki krýndur. Þorsteinn Magnús Sölvason Ólympíumótsfari Íþróttasambands fatlaðra verður á meðal keppenda í mótinu en þess má geta að hann og Ulf Eriksson frá Svíþjóð eru einu tveir fötluðu lyftingamenn heims sem hafa lyft 90kg. Atlassteininum í steinatökunni. Ulf er ríkjandi meistari og má búast við því að hann fá mikla samkeppni frá Finnanum og fjórföldum heimsmeistara Tafo Jettajorvi en vissulega munu íslensku keppendurnir láta vel fyrir sér finna og gera atlögu að öllum þeim verðlaunum sem í boði verða. Nánari upplýsingar um mótið veitir Arnar Már Jónsson skipuleggjandi mótsins. Mynd: Frá keppninni Sterkasti fatlaði maður heims árið 2006. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 2. október 2008 16:40 |
Ný heimasíða Special Olympics í Evrópu |
Ýmis verkefni eru í gangi í Evrópu sem tengjast aðildarfélögum og um að gera að leita sér upplýsinga sé vilji til þess að taka þátt í verkefnum sem ekki eru á vegum Special Olympics á landsvísu. Verkefni eins og Evrópuleikar og Alþjóðaleikar eru á vegum Íþróttasambands fatlaðra en ýmis mót í einstaka greinum gætu hentað félögum á Íslandi ekki síst sem samvinnuverkefni. Heimasíðan er: |
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 1. október 2008 17:04 |
Össur safnaði 315.000 kr. til handa ÍF |
Alls voru það 26 einstaklingar frá Össuri sem tóku þátt í maraþoninu og hlupu þau samanlagt 315 km. Össur er einn stærsti styrktar- og samstarfsaðili Íþróttasambands fatlaðra og sýnir hér enn einu sinni velvilja sinn í verki. Af þessu tilefni vill ÍF koma á framfæri innilegu þakklæti til Össuarar og þeirra einstaklinga sem lögðu á sig langhlaupin. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 25. september 2008 14:53 |
Fjarðarmótið sunnudaginn 5. október |
|
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 24. september 2008 11:53 |
Veglegt myndasafn frá Peking |
Myndasafnið er hægt að nálgast á www.123.is/if |
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 24. september 2008 09:52 |
Fjallabyggð heiðraði Baldur og Þór |
Afhenti bæjarstjórn Fjallabyggðar þeim báðum gyllt barmmerki og blómvönd fyrir afrek sín á íþróttasviðinu. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 23. september 2008 16:31 |
Opnunarhátíðin (myndband) |
Myndband frá opnunarhátíðinni. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 20. september 2008 17:31 |
Sonja fékk drottningarmeðferð á múrnum |
Aðstæður fyrir fólk með fötlun við heimsókn á Kínamúrinn eru erfiðar og því fékk Sonja Sigurðardóttir að kynnast. Adolf Ingi var fljótur að átta sig og bauð Sonju á hestbak og bar hana á bakinu vítt um múrinn. Sonja var Adolfi að vonum þakklát fyrir framtakið en gamli skíðagarpurinn lét sig ekki muna um þetta smáræði og skömmu síðar var hann mættur framan við myndatökuvélina að bæta enn í veglega sögu um Kínaferð Íþróttasambands fatlaðra. Íslenski hópurinn kom heim seint á fimmtudagskvöld og fékk hann höfðinglegar mótttökur. Sveinn Áki Lúðvíksson formaður ÍF tók á móti hópnum með blómum sem og þau Ólafur Rafnsson formaður ÍSÍ og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ. Þá voru stjórnarmenn ÍF einnig viðstaddir komu íslenska hópsins til Íslands og tóku hlýlega á móti ferðalöngunum. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 19. september 2008 11:56 |
Íslandsleikar Special Olympics í frjálsum íþróttum og knattspyrnu |
Íþróttasamband Fatlaðra þakkar öllum þeim sem komu að þessu verkefni sem tókst sérlega vel. Mikil stemming ríkti meðal keppenda sem flestir tóku þátt í báðum greinum og gáfu ekkert eftir. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 18. september 2008 15:17 |
Fjör og flottir taktar á fótboltaæfingu fatlaðra |
Síðastliðinn sunnudag var haldin sparkvallaæfing fyrir fatlaða á sparkvellinum við Brekkuskóla. Góðir gestir mættu á æfinguna, miðluðu af reynslu sinni og urðu vitni af flottum fótboltatöktum. Jónas L. Sigursteinsson stjórnaði æfingunni en gestkvæmt var á sparkvellinum. Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari karla, var einn þeirra er kom á æfinguna ásamt Kristni R. Jónssyni landsliðsþjálfara U19 karla. Þá mættu Gunnleifur Gunnleifsson, fyrirliði HK og Rakel Hönnudóttir fyrirliðið Þórs/KA ásamt Evu Hafdísi Ásgrímsdóttur leikmanni Þórs/KA. Þessi æfing er hluti af sparkvallaverkefni ÍF og KSÍ en verkefnið hófst árið 2007 og hefur mælst ákaflega vel fyrir. Tilgangur þessa verkefnis er að auka áhuga og þátttöku fatlaðra drengja og stúlkna í knattspyrnu. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 17. september 2008 16:31 |
Stærsta og veglegasta Ólympíumóti sögunnar lokið |
Vera íslenska hópsins í Peking hefur verið eftirminnileg og hópurinn er þegar farinn að gera sér hugmyndir um þátttöku í London 2012. Leiðin til London er löng og ströng og margir sem ætla beint heim til Íslands að æfa. Lokaathöfnin í dag var öll hin glæsilegasta eins og við var að búast. Flugeldar og miklar danssýningar með glæstum loftfimleikatilþrifum. Phil Craven forseti Alþjóða íþróttasambands fatlaðra sagði við athöfnina að mótið í Peking væri besta Ólympíumót fatlaðra sem farið hefði fram og laug hann þar engu um.
Landsliðshópur ÍF þakkar Kínverjum fyrir hlýjar og góðar mótttökur. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 17. september 2008 06:42 |
Eyþór verður fánaberi Íslands á lokahátíðinni |
Síðustu grein Ólympíumóts fatlaðra lauk í dag þegar hlaupið var maraþon en heimamenn í Kína hafa verið sigursælir og unnið til flestra gullverðlauna eða alls 88. Samtals hafa Kínverjar unnið til 208 verðlauna en þar á eftir koma Bretar með 102 verðlaun. Topp 10 sigursælustu þjóðirnar á Ólympíumótinu: 1. Kína 88 gull, 68 silfur, 52 brons |
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 16. september 2008 13:46 |
Þorsteinn: Mikilvægt í reynslubankann |
Hvernig fannst þér að taka þátt á þessu gríðarstóra móti í Peking? Árangurinn var ekki sá sem þú hafðir ætlað þér, ertu kominn með hugann við London 2012? Ætlar þú að taka þér smá frí eða á að fara beint heim í ræktina? Framtíðin í lyftingum fatlaðra á Íslandi. Hvernig sérð þú hana? |
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 14. september 2008 12:47 |
Þorsteinn í 12. sæti í Peking |
Heimamaðurinn Liu Lei vann yfirburðasigur í flokknum þegar hann lyfti 225 kg. við mikinn fögnuð áhorfenda. Athygli vakti að Lei var bæði yngsti og léttasti keppandinn en Lei er 18 ára gamall og 70,44 kg. Lei gerði ekki atlögu að heimsmetinu sem samlandi hans Haidong setti í Ástralíu en sú lyfta vó 240 kg! Í annarri lyftu reyndi Þorsteinn við 125kg. og þyngdin fór upp en dómarar ákváðu að lyftan væri ógild. Arnar Már Jónsson þjálfari Þorsteins sá fátt athugavert við aðra lyftuna hjá Þorsteini og hefði viljað sjá dómara dagsins dæma hana gilda. Í þriðju lyftu reyndi Þorsteinn aftur við 125 kg. en þá vildu lóðin ekki upp. Nú hefur íslenski hópurinn lokið keppni á Ólympíumótinu og staðið sig með glæsibrag. Hópurinn heldur heim á leið þann 18. september og þangað til verður farin heimsókn á Kínamúrinn, á Torg hins himneska friðar og Peking skoðuð með árvökulum augum ferðamannsins. Mynd: Þorsteinn veifar aðdáendum sínum í lyftingahöllinni í Peking en hann var rækilega studdur áfram af íslenska hópnum í dag. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 13. september 2008 16:44 |
Jón Oddur: Eins og í Gladiator |
Þegar þú varst kynntur til leiks á vellinum rakst þú upp mikið stríðsöskur. Var það svona í hita leiksins? Er þetta það stærsta mót sem þú hefur hlaupið á? Þetta er þinn næstbesti tími á ferlinum, ertu sáttur? Svakalegt hlaup sem þú tókst þátt í og fjórir hlauparar hlupu undir heimsmetinu. Eitthvað sem fæstir hefðu búist við!Þetta hlýtur að vera eitthvað tímamótahlaup, í það minnsta mjög merkilegt. Hvað tekur svo við núna? Þorsteinn Magnús Sölvason lyftingamaður keppir á morgun í bekkpressu og er hann síðastur íslensku keppendanna til að stíga á stokk. Hann lyftir kl. 16:00 að staðartíma eða um kl. 08:00 að íslenskum tíma. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 13. september 2008 13:33 |
Jón Oddur fimmti í 100m. hlaupinu |
Jón Oddur hljóp á fimmtu braut frammi fyrir rúmlega 90.000 manns og þegar kappinn var kynntur til leiks rak hann upp skaðræðis stríðsöskur og var klár í slaginn. Heimamennirnir skipuðu tvö fyrstu sætin og stúkan lét vel í sér heyra en Jón Oddur var sáttur við tímann enda besti tími hans á árinu. Þess má geta að heimsmethafinn Sen Yang er 18 ára gamall og besti tími hans í 100m. hlaupinu á þessu ári er 17.79 sek! Yang þessi fór því hreinlega á kostum frammi fyrir löndum sínum í dag og alls ekki ólíklegt að met hans muni standa í einhvern tíma. Árangur Jóns er sá besti síðan hann vann til silfurverðlauna á Ólympíumóti fatlaðra í Aþenu 2004 og vindurinn í hlaupinu í dag var -0,3. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 13. september 2008 13:07 |
Eyþór: Stefni á gull 2012 |
Ertu farinn að hugsa um London 2012? Hvað tekur nú við hjá þér? Hvað finnst þér eftirminnilegast við þátttökuna þína á Ólympíumótinu? |
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 13. september 2008 03:40 |
Eyþór lauk keppni í Peking með 5 sekúndna bætingu |
Kínverjinn Bozun Yang hefur verið sjóðheitur á Ólympíumótinu og synti hann í undanrásum með Eyþóri og bætti heimsmetið um tæpa sekúndu þegar hann kom í mark á tímanum 1:08,40 mín. Vatnsteningurinn er að hafa góð áhrif á sundmenn hér í Peking sem slá heimsmet á hverjum degi. Eyþór var í dag með millitímann 38,57 sek. en lokatími hans var 1:20.12. Sundmenn Íslands hafa því lokið keppni og bæði Eyþór Þrastarson og Sonja Sigurðardóttir stóðu sig með mikilli prýði. Eyþór bætti sína bestu tíma verulega og Sonja synti á sínum besta tíma í tæp tvö ár. Þjálfararnir Ingi Þór Einarsson og Kristín Guðmundsdóttir hafa unnið mikið og gott starf með þau Eyþór og Sonju hér í Peking og getur sundhópurinn sáttur við unað.
Myndir: Á efri myndinni sendir Eyþór Þrastarson góðar kveðjur upp í stúku en á neðri myndinni eru foreldrar hans ásamt Steinunni móður Sonju Sigurðardóttur en þau þrjú áttu stúkuna í Vatnsteningnum í morgun! Spretthlauparinn Jón Oddur Halldórsson keppir einnig í dag í 100m. hlaupi og hefst það á slaginu kl. 18:00 að staðartíma eða um kl. 10:00 á Íslandi. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 12. september 2008 09:26 |
Frábært aðstoðarfók Íslands í Peking |
Hópurinn mætir snemma morguns í hýbíli íslenska hópsins og er sjaldnast farinn heim fyrr en seint á kvöldin. Ómetanlegt er að hafa enskumælandi túlka með í för enda enskan lítt útbreitt mál í Kína þó hún sé helsta bjargræðisleið Frónverja utan landsteinanna. Þrír þessara aðstoðarmanna eru lögfræðinemar við háskóla í Peking og hafa þau sýnt Íslandi mikinn áhuga og hyggja öll á komu. Sá elsti í hópnum er fyrrum hjartalæknir við Japan-Chinese Friendship Hospital í Peking hann bauð hluta af íslenska hópnum í hjartaómun á dögunum. Mynd: Frá vinstri, Brady, Cathy, og Ling. Fyrir aftan er hjartalæknirinn Mr. Wang og Gilbert. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 11. september 2008 14:09 |
Eyþór: Þetta sund í dag, fæðingin, giftingin og dauðinn |
Hver voru þín viðbrögð við sundi þínu í undanrásum í dag? Hvernig upplifðir þú þessa stóru stund í þínu lífi? Ertu búinn að setja þér ný tímamarkmið í 400m. skriðsundi?Þau eru ekki tilbúin en þau eru allavega ekki lengur 5:11,54 mín. í dag. 100m. baksund er næst á dagskrá. Hvernig leggst sú grein í þig? |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 11. september 2008 13:33 |
Eyþór hafnaði í áttunda sæti |
Spánverjinn Enhamed Enhamed nældi sér í gullverðlaun á tímanum 4:38,32, annar varð Kínverjinn Bozun Yang á 4:43,29 og bronsverðlaunin hlutu Kanadamenn þegar Donovan Tildesley synti á tímanum 4:49,45. Dagurinn í dag var einhver sá stærsti á íþróttamannsferli Eyþórs en tími hans í undanrásum er langbesti tími Eyþórs í 400m. skriðsundi. Millitímar Eyþórs í úrslitasundinu: 34,49 Lokatími: 5:15,63 Á morgun, 12. september, er enginn af íslensku keppendunum að keppa en þann 13. september eru bæði þeir Eyþór og Jón Oddur Halldórsson að keppa. Eyþór í 100m. baksundi og Jón Oddur í 100m. spretthlaupi. Mynd: Ingi Þór Einarsson sundþjálfari lætur Eyþór vita að hann sé að nálgast endamarkið. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 11. september 2008 11:41 |
Íslandsleikar Special Olympics í frjálsum íþróttum og knattspyrnu |
Laugardaginn 13. september 2008 verða haldnir Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu og frjálsum íþróttum í Boganum á Akureyri. Íslandsleikar Special Olympics eru haldnir í samvinnu Íþróttasambands Fatlaðra, Knattspyrnusambands Íslands og aðildarfélaga ÍF á Akureyri. Markmið ÍF og KSÍ er að knattspyrnufélög taki aukna ábyrgð á því að stuðla að tækifærum fyrir fatlaða á sviði knattspyrnuiðkunar. Leikmenn úr meistaraflokki Þórs munu sjá um upphitun fyrir knattspyrnumótið. Dagskrá mótsins. kl. 10.30 Mótssetning kl. 10.35 keppni hefst, frjálsar kl. 12.30 Knattspyrna, upphitun kl. 13.00 Knattspyrna, keppni hefst kl. 15.00. Verðlaunaafhending (Verðlaunaafhending fer einnig hugsanlega fram á milli greina) |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 11. september 2008 11:36 |
Sparkvallaverkefni Íþróttasambands Fatlaðra og Knattspyrnusambands Íslands 2008 |
Ákveðið hefur verið að standa fyrir sparkvallaverkefni IF og KSÍ á Akureyri í samvinnu við ÍBA. Opin æfing verður á sparkvellinum við Brekkuskóla á Akureyri sunnudaginn 14. september 2008. Æfingin verður frá kl. 12:00 til 13:30. Leiðbeinandi verður: Jónas L. Sigursteinsson en auk þess munu Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari og Kristinn R. Jónsson, þjálfari U19 karla mæta á svæðið auk fleiri góðra gesta. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 11. september 2008 08:19 |
Eyþór í úrslit! |
Eyþór var áttundi og síðastur inn í úrslitin sem fara fram kl. 18:49 hér í Peking eða um kl. 11.00 heima á Íslandi. Fyrstur eftir undanrásir var heimamaðurinn Bozun Yang á tímanum 4:46,06 mín. Millitímar Eyþórs í sundinu: |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 11. september 2008 02:24 |
Eyþór syndir á annarri braut í dag |
Eyþór hefur verið í fantaformi á æfingum hér úti í Peking og því verður fróðlegt að sjá hvernig honum mun takast til á þessu fyrsta Ólympíumóti sínu. Nái hann inn í úrslit í dag syndir hann aftur seinna í kvöld, að öðrum kosti syndir hann ekki aftur fyrr en 13. september þegar hann keppir í 100m. baksundi. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 10. september 2008 15:39 |
Yfirlýsing frá Íþróttasambandi fatlaðra |
Íþróttasamband fatlaðra óskaði eftir því að Jóhanna Sigurðardóttir, Félags- og tryggingamálaráðherra yrði heiðursgestur Ólympíumóts fatlaðra árið 2008 í Peking og þekktist hún boðið. Íþróttasamband fatlaðra hefur átt mjög gott samstarf við menntamálaráðherra og harmar þessi ómaklegu skrif. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 9. september 2008 17:39 |
Baldur: Gerði það sem ég ætlaði mér |
Ertu sáttur við árangurinn? Hvað tekur svo við núna? Ertu farinn að gæla við sex metra markið? |
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 9. september 2008 17:19 |
Baldur jafnaði Íslandsmetið í Peking |
Stökksería Baldurs:
Heimsmet var setti í flokki Baldurs í dag (F37) en það gerði Kínverjinn Ma Yuxi þegar hann stökk 6,19 metra. Í flokki F38 var gríðarleg spenna þar sem tveir máttu sætta sig við að deila heimsmetinu en Túnismaðurinn Chida Farhat varð Ólympíumótsmeistari á næstbesta stökki sem var 6,40 metrar. Pakistaninn Ali Haider jafnaði heimsmet Farhat í sínu síðasta stökki í dag þegar hann fór 6,44 metra en þá lengd átti Farhat í fimmta stökki.
|
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 8. september 2008 15:39 |
Össur meitlar Ólympíulið fatlaðra í stein |
Þarna voru einnig mætt þau Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra ásamt fylgdarliði og sendiherra Íslands í Kína og hans fólk. Veislan var að hefðbundnum kínverskum hætti, á veitingastað í gömlum kínverskum stíl. Matseðillinn samanstóð af ótalmörgum smáréttum. Athygli okkar vakti að ekki var eitt einasta hrísgrjón á boðstólum. Undir borðum fóru fram margvísleg skemmtiatriði að kínverskum sið, einleikur með grímum, töfrabrögð krydduð með grínbrögðum. Mesta athygli okkar og hrifningu vakti þó sýning á kínverskri bardagalist að hætti Jackie Kahn. Færnin og hraðinn voru aðdáunarverð. Það eina sem á vantaði var að kapparnir hlypu upp veggina.
Að lokninni veislunni var haldið aftur heim í Ólympíuþorpið þar sem við tóku ákafar æfingar í kínverskri bardagalist og þótti spatískt hreyfimynstur fararstjórans sérstaklega ógnvænlegt en jafnframt talsvert spaugilegt. Á morgun er síðan komið að Baldri Ævari Baldurssyni, Ólafsfirðingi, að keppa í langstökki. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 8. september 2008 07:46 |
Strax farin að huga að London |
Hvernig leið þér á leið út í laugina? Hver voru þín markmið hér í Peking? Hvað á svo að fara að gera núna í Peking þegar þú ert búin að keppa? |
Íþróttasamband Fatlaðra | Mánudagur 8. september 2008 07:03 |
Flott sund hjá Sonju sem lokið hefur keppni í Peking |
Sonja hafnaði í 10. sæti í undanrásum af 14 keppendum og það dugði því ekki til þess að ná inn í úrslitin. Tvö heimsmet voru slegin í lauginni í dag og komu þau í síðustu tveimur sundunum áður en Sonja hóf sína keppni. Laugin, keppendur sem og áhorfendur voru því í góðum gír og það nýtti Sonja sér vel og synti á 57,90 sekúndum. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Sunnudagur 7. september 2008 16:32 |
Ráðherra bauð íslenska hópnum í veglega veislu |
Jóhanna hélt skemmtilega tölu yfir hópnum í hófinu og óskaði þeim alls hins besta á mótinu og kvaðst stolt af íslensku keppendunum. Hún sagði einnig að hún hefði skemmt sér konunglega á opnunarhátíð Ólympíumótsins og hlakkaði til að fylgjast með framgangi Íslands hér í Peking. Sveinn Áki Lúðvíksson formaður Íþróttasambands fatlaðra leysti bæði ráðherra og sendiherra út með veglegum gjöfum á hófinu en með Sveini Áka í för hér í Peking eru þau Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri fræðslu- og útbreiðslusviðs og Special Olympics á Íslandi og Þórður Árni Hjaltested ritari stjórnar ÍF. Sonja Sigurðardóttir ríður á vaðið á morgun þegar hún keppir í 50m baksundi en keppnisdagurinn hefst kl. 09:00 að staðartíma en Sonja syndir laust fyrir kl. 10:00. Við minnum á að sýnt er beint frá hinum ýmsu greinum Ólympíumótsins á vefsíðunni www.paralympicsport.tv Kristín Guðmundsdóttir sundþjálfari er spennt fyrir morgundeginum og hefur fulla trú á því að Sonja muni gera sitt allra besta í lauginni. ,,Æfingar hafa gengið vel að undanförnu, Sonja er í fantaformi og virðist kunna vel við sig í þessari glæsilegu sundhöll,“ sagði Kristín. Gullkorn dagsins á Jón Oddur Halldórsson í samtali sínu við Inga Þór Einarsson sundþjálfara. Ingi Þór hafði verið að slá um sig og bera sig heldur karlmannlega: |
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 6. september 2008 18:21 |
Jón Oddur fór fyrir íslenska hópnum í hreiðrinu |
Troðfullt var á leikvanginum og uppselt í hvert einasta sæti og létu þessir 91 þúsund áhorfendur vel í sér heyra. Utanumhald Kínverja á mótinu er með þvílíkum ólíkindum að annað eins verður seint leikið eftir. Við Ólympíumót fatlaðra eru 40.000 sjálfboðaliðar keppendum og gestum innan handar í öllum sínum daglegu erindagjörðum og hvergi bregður út af í skipulaginu.
Á opnunarhátíðinni sjálfri unnu Kínverjar mikið með frumefnin, sólarupprásina og tilurð lífsins. Inn á milli skörtuðu heimamenn svo einni sinni merkustu uppfinningu (púðrinu) þegar litríkir flugeldar prýddu himinn. Allt ætlaði svo um koll að keyra þegar heimamenn gengu síðastir inn á leikvanginn. Kínverjar fjölmenntu á pallana og fögnuðu sínu fólki af miklum innilegheitum. Nokkur þemu voru á hátíðinni sem hófst á myndrænni för um geiminn sem varð svo að skemmtilegu tímaflakki. Börn á aldrinum 6-12 ára vöktu óskipta athygli áhorfenda en þau voru 2000 talsins og komu inn á sviðið í dýrabúningum. Samhæfing þeirra var óaðfinnanleg og undirstrikaði enn einu sinni hversu mikilli vinnu, tíma og fjármunum hefur verið varið í að halda Ólympíumótið hér í Peking. Lokahnykkurinn var svo ekki af verri endanum í kvöld þegar kínverskur gullverðlaunahafi frá Ólympíumótinu í Aþenu 2004 hífði sig af gólfi leikvangsins í hjólastjól upp í rjáfur og tendraði Ólympíueldinn. 6. september 2008 er dagur sem líkast til mun seint fara úr minni íslenska hópsins en nú er Ólympíumótið hafið og strax á morgun hefst keppnin af fullum þunga. Eins og áður hefur komið fram á heimasíðunni verður það Sonja Sigurðardóttir, ÍFR, sem ríður á vaðið þann 8. september er hún keppir í 50m baksundi. Vissir þú að: Gullkorn dagsins: |
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 5. september 2008 15:26 |
Ísland formlega boðið velkomið í Ólympíuþorpið |
Ólafur Magnússon aðalfararstjóri Íslands í ferðinni afhenti borgarstjóranum í Ólympíuþorpinu forláta leirvasa við athöfnina í dag. Vasinn var allur hinn veglegasti og þótti borgarstjóranum mikið til koma enda vasinn skreyttur engu öðru en íslenska fáknum. Á morgun verður svo opnunarhátíð Ólympíumótsins og hefst hún kl. 20:00 að staðartíma eða um hádegisbil á Íslandi. Opnunarhátíðin fer fram í Fuglshreiðrinu glæsilega en leikvangurinn tekur 91 þúsund manns í sæti. Við hvetjum sem flesta til að fylgjast vel með á vefsíðunni www.YouTube.com/ParalympicSportTV en þar verður hægt að nálgast fjölda frétta af mótinu sem og beinar útsendingar. Keppnisdagskrá íslenska hópsins Þess má geta að hér í Peking er að verða uppselt á alla viðburði í sundhöllinni sem og á aðalleikvanginn sem er fuglshreiðriðs svo von er á fjölmenni við hvern þann atburð þar sem íslensku keppendurnir munu keppa.
Gullkorn dagsins: |
Íþróttasamband Fatlaðra | Fimmtudagur 4. september 2008 14:07 |
6500 fjölmiðlamenn munu fylgjast með Ólympíumótinu |
Íslenski hópurinn hélt áfram æfingum sínum í dag og er óðum að fá betri og sterkari tilfinningu fyrir leikvöngunum þar sem greinarnar fara fram. Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra Íslands hélt af stað áleiðis til Peking í dag ásamt þeim Sveini Áka Lúðvíkssyni formanni ÍF, Önnu Karólínu Vilhjálmsdóttur framkvæmdastjóra fræðslu- og útbreiðslusviðs og Special Olympics á Íslandi. Þá var Þórður Árni Hjaltested einnig með í för en hann er ritari stjórnar ÍF. Hæstvirtri Jóhönnu til halds og trausts í ferðinni verða þau Hrannar Björn Arnarsson aðstoðarmaður ráðherra og Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri. Þetta fríða föruneyti er væntanlegt til Peking á morgun og mun þá m.a. vera viðstatt mótttökuhátíð íslenska liðsins inni í Ólympíuþorpinu sem hefst kl. 18:00 að staðartíma eða kl. 10:00 á morgun. Á meðfylgjandi mynd sést hvar Jón Oddur Halldórsson fær meðferð hjá Ludvig Guðmundssyni lækni ÍF í ferðinni. Jón Oddur mun keppa í 100m spretthlaupi þann 13. september næstkomandi. Hlaupinu hjá Jóni var breytt af mótshöldurum og það fært frá 12. september til 13. september. Gullkorn dagsins er í boði Jóns Odds Halldórssonar: Betlarar geta ekki verið vandfýsnir. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Miðvikudagur 3. september 2008 15:35 |
Íslenski hópurinn hóf æfingar í dag |
Ingi Þór Einarsson annar tveggja sundþjálfara Íslands í ferðinni var með sundfólkinu við æfingar í Vatnsteningnum í dag og bar hann sundhöllinni góða söguna; ,,Sundliðið æfði í vatnsteningnum. Höllin er svakaleg, einu orði sagt, auðvitað er laugin bara 25*50 m og hún er full af vatni, en það er svo margt annað í kring, sem spilar inni í. Það væri hægt að æfa fallhlífarstökk úr loftinu og skíðastökk úr stúkunni. Eyþóri og Sonju fannst svakalega gott að synda í lauginni og fundu sig mjög vel, þrátt fyrir að vera ennþá með ferðaþreytu. Við erum öll spennt fyrir framhaldinu,'' sagði Ingi en sundhópurinn æfir aftur í keppnislauginni í hádeginu á morgun. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Þriðjudagur 2. september 2008 16:52 |
Íslenski hópurinn kominn til Peking |
|
Íþróttasamband Fatlaðra | Laugardagur 30. ágúst 2008 20:07 |
Ólympíuþorpið opnar |
Senn líður að því að 13. Ólympíumót fatlaðra verði sett í Peking í Kína en opnunarhátíð mótsins fer fram þann 6. september n.k. Undirbúningur framkvæmdaaðila Ólympíumótsins er í fullum gangi og líkt og á Ólympíuleikunum leggja Kínverjar mikið á sig til að allur aðbúnaður verði sem bestur fyrir þátttakendur og aðra þá er að mótinu koma. Keppni í hinum ýmsu greinum Ólympíumótsins fer fram á sömu leikvöngum og notaðir voru á Ólympíuleikunum og keppendur og aðrir búa í Ólympíuþorpinu líkt og þátttakendur á nýafstöðnum Ólympíuleikum. Þannig verður Ólympíuþorpið frá 1. – 18. september heimili 7.383 einstaklinga, þar af 4.099 íþróttamanna. Íslensku þátttakendurnir koma til Peking þann 2. september n.k. og verða þeir formlega boðnir velkomnir í þorpið í móttökuathöfn sem fram fer þann 5. september n.k. |
Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 29. ágúst 2008 23:09 |
Fengu Canon myndavélar að gjöf fyrir Kínaferðina |
Nýherji hefur fært öllum íslenskum keppendunum, sem halda á Ólympíumót fatlaðra í Ólympíumót fatlaðra hefst 6. september í Kína. Íslendingar eiga tvo fulltrúa í frjálsíþróttum, tvo í sundi og einn lyftingamann. ”Við erum full tilhlökkunar til ferðarinnar og keppninnar. En þrátt fyrir mikinn keppnisanda ætlum við einnig að njóta þess að vera hluti af jafn stórum leikum og Ólympíuleikar fatlaðra eru og viljum taka með okkur góðar minningar heim. Gjöfin frá Nýherja mun því án ef koma keppendum í góðar þarfir því þeir munu eflaust taka myndir af hvort öðru, borginni og keppninni eins og kostur er,” segir Jón Björn Ólafsson hjá Íþróttasambandi fatlaðra. |
Björn Daníel Daníelsson | S10 | 100 skrið | 1:54,56 | 29/03/08 |
Hrafnkell Björnsson | S5 | 50 skrið | 58,71 | 29/03/08 |
Hrafnkell Björnsson | S5 | 100 skrið | 2:08,66 | 29/03/08 |
Pálmi Guðlaugsson | S6 | 50 flug | 47,51 | 29/03/08 |
Björn Daníel Daníelsson | SB9 | 50 bringa | 57,33 | 29/03/08 |
Guðmundur Hermannsson | SB8 | 50 bringa | 59,26 | 29/03/08 |
Pálmi Guðlaugsson | S6 | 200 fjór | 3:55,94 | 29/03/08 |
Hrafnkell Björnsson | S5 | 50 bak | 1:06,92 | 29/03/08 |
Hrafnkell Björnsson | S5 | 100 bak | 2:20,14 | 29/03/08 |
Guðmundur Hermannsson | SB8 | 50 bringa | 58,72 | 29/03/08 |
Marino Adolfsson | SB7 | 50 bringa | 1:29,66 | 29/03/08 |
Pálmi Guðlaugsson | S6 | 100 flug | 1:53,56 | 30/03/08 |
Hrafnkell Björnsson | S5 | 50 bak | 1:06,66 | 30/03/08 |
Marino Adolfsson | SB7 | 100 bringa | 3:18,40 | 30/03/08 |